Aðalvalmynd

Guildford...London...

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Eitt og annað bara...

10. október 2008 klukkan 21:01
Hæhæ 


Ótrúlegt hvað ég hef innilega ekki nennt að blogga síðan ég kom heim...


En ég ákvað að skella nú inn smá bloggi.


Vikurnar í Guildford voru stórkostleg reynsla. Ég er svo þakklát fyrir þessar vikur. Ég lærði svo ótrúlega margt, leiklistar-, söng- og danstengt og líka bara um sjálfa mig. Ég var nú viss um að þetta væri það sem mig langaði að gera þegar ég fór út en ég fann á meðan ég var úti að þetta er ekki bara það sem mig langar að gera heldur er þetta sá staður þar sem ég á heima. Ég get ekki beðið eftir að hella mér út í svona nám af fullum krafti þó svo að það gæti þurft að bíða vegna þessa hrikalega ástands í efnahagsmálum :S


Ég eignaðist yndislegar vinkonur á þessum vikum. Þetta var rosalega stíf vinna og við þurftum að vinna með intensíft saman. Ég bjóst nú alveg við því að kynnast skemmtilegum krökkum en ekki að eignast alvörunni VINI! Svona friends-for-life vini. Þær voru yndislegar allar með tölu.


Ég ætlaði að vera í London núna, að hitta fólk, halda upp á afmæli Agnesar minnar og fara í leiklistartíma og eitthvað. Ég hætti við, þegar gjaldeyriskreppan skall á. Ég var fegin að hafa tækifærið til þess að hætta við. Ekki gaman að vera í London núna, Íslendingar kallaðir terroristar og eitthvað :S Agnes er þar...ég vona að hún komist heim :P


Lífið er komið í rútínu...eða svonaaaa...ég er á lokaönninni minni í MH núna, útskrifast 20. desember. Mér finnst MH yndislegur skóli og ég er búin að njóa tímans míns þar alveg rosalega. En ég er samt fegin að það sé komið að lokum á þessu. Mér finnst ég búin að eyða nógum tíma þarna og fá það sem mér finnst maður eigi að fá út úr menntaskólaárunum. Ég veit hvað ég vil gera næst og hlakka til að leggja af stað í það...


FÍH er skemmtilegur eins og alltaf, þó að það vanti allt gamla "gengið" mitt, eða svo til. Lísa mín sagði skilið við skólann, Ágústa líka, María er útskrifuð, Thelma hamast í háskólanámi (duglega stelpa) í iðjuþjálfa svo þó svo að hún sé í skólanum ennþá sér maður ekkert of mikið af henni, Svenna sé ég aldrei...Erlurnar mínar eru báðar þarna ennþá, sem betur fer...ekki það að ég hitti þær eitthvað í skólanum samt :S  Rósa er samt ennþá,,hjúkket! En það er gott fólk komið í þeirra stað svona "on a daily basis" þó svo að enginn komi í raun í staðinn fyrir alla þessa yndislinga. Ég sakna Lísu minnar svakalega úr skólanum. Við vorum svo mikið saman í tímum í fyrra. Sálarmessuna unnum við líka hlið við hlið, alla daga. Unnum vel saman þó svo að við þyftum að taka smá pásu frá hvor annarri eftir allt þetta samstarf...æji...hún er best! :D Sakna líka Ágústu, það er svo gott að umgangast hana, eitthvað svo heil sál og dásamleg. Sumt fólk er svona, manni líður bara alltaf betur eftir að hafa hitt það...Ágústa er þannig...


Þess vegna hlakka ég til á morgun. Lísa og Ágústa eru að frumsýna í Madonnu-showinu á Broadway og Lísa var svo yndisleg að bjóða okkur stelpunum. Við ætlum að fara ég, Erlurnar, Thelma, Rósa og einhverjir fleiri held ég. Það verður stuð.


Ég fer líka á Fólkið í blokkinni annað kvöld. Fer á það klukkan sjö, fer svo beint á Madonnu showið. Þetta verður frábært kvöld. Svo er elsku besta Unnur Elísabet að gifta sig á sunnudaginn, hlakka líka til þess. Það verður yndislegur dagur. Við vinkonur hennar gæsuðum hana um daginn, það var svaka stuð! Vorum allar himinlifandi með daginn...


Ég fór á Macbeth í gær. Það var...blóðugt! Frábær sýning, ég mæli alveg með henni fyrir alla nema viðkvæmar sálir :P Rúnar Freyr og Edda Björg alveg að brillera, fleiri góðir, þau einstök. Ég held ég hafi aldrei séð Rúnar svona góðan...svei mér þá...


Það eru þrjár yndislegar stúlkur fæddar í mínu umhverfi. Anna Þórarna Agnarsdóttir, dóttir hans Agga míns fæddist 28. maí. Fallegust í heimi, ég er svo stolt að fá að vera Hreindís frænka. Emilía Álfsól Gunnarsdóttir, dóttir Unnsu minnar fæddist 26. júlí, daginn sem ég fór út. Hún er yndisleg, svo falleg. Lítil dóttir Þóru Sifjar sem er með mér í FÍH og er stjúpmamma Anítu minnar fæddist 17. september. Falleg er hún snótin, ég hef reyndar ekki séð hana í eigin persónu, bara myndir. Til hamingju allir foreldrar prinsessanna þriggja!


Hérna eru myndir af þeim:

 Anna Þórarna Agnarsdóttir

 Anna Þórarna Agnarsdóttir, fædd 28. maí

Emilía Álfsól Gunnarsdóttir

Emilía Álfsól Gunnarsdóttir, fædd 26. júlí

Sæta mús

Litla óskírða dóttir Þóru Sifjar og Daða.


Jæja, úff, þetta blogg er orðið langt. Það endar alltaf þannig hjá mér. Blogga sjaldan en þegar ég geri það verður bloggið kílómetri að lengd :P


Ég kveð!

Hreindís

 

P.S. Ég fór í prufu fyrir söngshowið í FÍH þar sem tónlist herra Burt Bacharach verður tekin fyrir. Ég komst inn. Það voru færri valdir núna en áður...við erum bara 10. Erlurnar mínar komust inn líka...þetta verður stuð!

P.S.2 Viljiði spá, ég nefndi efnahagsörðugleikana bara tvisvar í þessu bloggi! Það hlýtur að vera met fyrir Íslending...

Starbucks...

07. ágúst 2008 klukkan 08:44
Var að bæta inn 4-5 dögum af ferðasögunni hérna fyrir neðan. Takk fyrir kommentin þeir sem skrifuðu á fyrsta hlutann. Ég veit þetta er ansi löng á nákvæm ferðasaga en það verður meira gaman fyrir mig að eiga hana þannig seinna meir :)

Ég sit núna á Starbucks með Ivönu, serbnesku vinkonu minni hérna, hún er mikil kaffimanneskja og hefur því ekkert á móti því að setjast niður á Starbucks með mér áður en tímarnri byrja. Klukkan er núna 25 mínútur í 10 og við förum að rölta okkur í skólann, það er ekki nema svona 7 mínútna labb héðan. Var að sjá þrjár stelpur úr hópnum mínum hérna líka...ætla að koma mér og vera samferða þeim.

Allt frábært að frétta héðan...

Hreindís

Miðvikudagurinn 6. ágúst

07. ágúst 2008 klukkan 08:41

Dagur 12


Ég vaknaði aðeins seinna en vanalega í dag, ekkert hættulegt samt, kortér eða svo. Borðaði morgunmat, gerði nesti fyrir daginn og tók svo strætó með stelpunum. Við erum fjórar sem erum ansi mikið saman þessa dagana. Ég, Ivana, Kirsty og Lauren. Sarah og Barbara eru líka góðar vinkonur okkar Ivönu en þær eru í öðrum hópi sem er í æfingahúsnæði sem er frekar langt frá aðalbyggingunni, alveg annars staðar í bænum, svo við hittum þær svo sjaldan, en Kirsty og Lauren eru í mínum hóp og Kirsty er í herberginu hérna beint á móti mér og Lauren er á þriðju hæðinni en er alltaf niðri hjá okkur því það er ekkert skemmtilegt fólk á hennar hæð.


Nú í dag var Song Presentation í fyrsta tíma. Þar syngjum við fyrir hver aðra. Ég söng í síðustu viku svo ég hlustaði bara á hinar. Í síðustu viku fannst mér allar vera rosalega góðar en í dag var mjög mikill munur. Það voru þrjár sem gátu eiginlega bara ekkert sungið og svo fjórar mjög góðar sem sungu í dag. Eftir þennan tíma var svo Choral Class þar sem við fórum yfir lögin sem við vorum búnar að læra fyrir sýninguna og lærðum nýja syrpu þar sem nokkur söngleikja lög eru sungin tvö og tvö í einu, s.s. yfir hvert annað. Byrjar á að As long as he needs me úr Oliver og Can't help lovin' dat man úr Show Boat eru sungin á sama tíma, svo On my own úr Vesalingunum og I don't know how to love him úr Jesus Christ Superstar, svo I hate men úr Kiss me Kate og Wonderful Guy úr Oklahoma og svo endar þetta allt saman á broti úr laginu Someone like you úr Jekyll & Hyde sem við beltum (CVT fólk skilur þetta) í fimm röddum!!! Good times...


Nú, svo var kominn hádegismatur. Eftir hann var æfing fyrir sýninguna. Byrjuðum á að syngja og syngja með James, fara yfir lögin, læra raddir við lagið sem við lærðum í gær úr Spring Awakening og læra tvö ný. Svo tókum við pásu og eftir hana kom Jill danskennari og kóreógrafíraði Spring Awakening lagið og við renndum svo yfir allt sem við erum komnar með. Það er orðinn alveg dágóður slatti, Ætlum að klára að gera dansinn við Holding out for a hero á morgun. Hlakka til. Það var ákveðið að hluti hópsins myndi syngja og hinn dansa. Við máttum velja og ég valdi að dansa þar sem við erum að syngja milljón önnur lög líka og ég vil fá smá áskorun. Þetta er pínu flókin dans en ég held ég geti alveg náð honum mjög vel ef ég held áfram að æfa mig.

Eftir skóla fórum ég, Ivana, Kirsty og Lauren heim og BEINT í sturtu...jiminn hvað það var GÓÐ sturta. Borðuðum svo kvöldmat og settumst svo niður að spjalla. Spiluðum spil sem heitir The Big Taboo sem er eiginlega alveg eins og Party og co nema það er einhver fjólublár kall (bangsi eiginlega) sem maður á að nota og láta hann leika hluti í staðinn fyrir hlutann í Party og co þegar maður á sjálfur að leika. Annars er þetta svipað, bannorð og eitthvað. Mjög gaman og ég, Lauren og Kirsty unnum Ivönu, Söruh og Leann. Spjölluðum svo aðeins meira. Allt í einu klukkan rúmlega níu ákveður Kirsty að fara í Tesco sem er svona súpermarkaður sem er opinn allan sólarhringinn og ég og Lauren ákváðum að fara með henni, þær eru báðar á bíl hérna. Við buðum Ivönu með sem hún og þáði. Vorum allar á náttfötunum EN það gerði þetta bara meira stuð. Komum til baka og þá hittumst við Natalie og Miriam sem voru að bíða ásamt fleiri stelpum eftir að kærasti Natalie kæmi og voru þær búnar að ákveða að láta sem Miriam talaði enga ensku, bara hollensku, sem ég held að hún reyndar geri, þá meina ég að tala hollensku, en enskan hennar er fín. Við fórum upp þegar hann var kominn og jiminn eini hvað þetta var brjálæðislega fyndið. Hún var ekkert smá góð og hélt andliti allan tímann. Hún byrjaði að syngja og þóttist vera geðveikt léleg og þær hlógu að henni og þá fór hún að gráta og það komu tár í alvörunni og þær sögðu við hann að henni liði miklu betur ef hann myndi syngja líka OG HANN GERÐI ÞAÐ. Vá, þetta var bara of fyndið.


Við fórum svo niður, þær ætla ekkert að segja fyrr en á morgun. Ég og Kirsty spiluðum rommí í smá stund, vorum báðar eitthvað ekki tilbúnar að fara að sofa og einhverra hluta vegna sakna ég Maríu minnar svo ótrúlega mikið akkúrat núna og þurfti bara að spjalla við einhvern til að dreifa huganum. Sakna allra annarra líka auðvitað, mömmu og pabba og Yngva og Agnesar og voffanna minna og kisunnar minnar og allra vina minna en Maríu eitthvað sérstaklega mikið. Við vorum nefnilega að tala um áðan við stelpurnar hvað vinátta stelpna er merkilegt fyrirbæri og þá varð mér hugsað til Maríu :S Hlakka til að hitta hana.


Mamma hringdi áðan þar sem að hún er búin að ákveða að koma og hitta mig í London og svo förum við saman heim. Það ætti að verða gaman. Hlakka til. Það var svo gaman hjá okkur í skvísuferð í Gautaborg og Köben.


Vildi óska að María væri að koma líka!


En nú er ég farin að sofa...

Góða nótt

Hreindís

Þriðjudagurinn 5. ágúst

07. ágúst 2008 klukkan 08:39

Dagur 11


Jæja, þriðjudagur og ekki mikið eftir af þessu frábæra Musical Theatre námskeiði. EN ég á aðra viku eftir á Intensive Dance námskeiðinu. Jæja, ég vaknaði á sama tíma og vanalega í dag og borðaði morgunmat. Við Ivana fórum frekar snemma af stað ásamt Kirsty, Lauren og Natalie til þess að ná að setjast niður á Starbucks fyrir tíma og spjalla og ég tók tölvuna mína með til að kíkja á emailið og svona. Kósíheit bara. Fórum svo í skólann þar sem fyrsti tími var dans hjá henni Jill. Tókum hröðustu upphitun í heimi og fórum svo að vinna í dansatriðum fyrir sýninguna. Lærðum krúttlegan en snúinn Charleston-tímabils-dans við lagið The Boyfriend og byrjuðum á nett flókinni rútínu við Holding out for a hero úr Footloose. Good times...ég elska þessa tíma. Get ekki beðið eftir að gera þetta allan daginn í næstu viku og þá að fara aðeins nákvæmar í allt eins og t.d. ballett. Við fórum smá í ballett í síðustu viku en ekkert sem heitið getur. Hlakka líka til að læra að steppa...


Nú jæja, næsti tími var The 5 minute play - leiklistartími. Það var basically spunatími þar sem okkur var skipt í hópa og hver hópur fékk einn stíl sem við áttum að búa til fimm mínútna leikrit undir. Við Becky, Lucy og Natalie fengum afar skemmtilegan stíl - Óperu - sem þýðir að við áttum að syngja allt sem við sögðum í klassískum stíl í spunanum. Ótrúlega skemmtilegur tími.


Svo var kominn hádegismatur. Hópurinn sem ég er í er orðinn mjög náinn, fyrir utan svona tvær stelpur sem eru ekkert með okkur heldur stelpunum sem gista á sama stað og þær en við hinar hrúgumst alltaf allar á eitt borð og sitjum í kremju og reynum að borða. Núna entumst við reyndar ekki í mat nema í svona 20 mínútur og fórum þá í æfingastúdíóið sem hópurinn okkar er mest í (Grant Studio) og fórum eiginlega strax bara að æfa atriðin sem við lærðum í danstímanum um morguninn (duglegar stelpur eða hvað?). Hlógum og fífluðumst þess á milli reyndar en náðum að festa allt betur í minninu.

Eftir hádegi var æfing fyrir sýninguna frá 13-17 með smá pásu. Lærðum að syngja lagið The Boyfriend sem við byrjuðum að kóreógrafía um morguninn sem er mjög skemmtilegt lag um stelpur sem eru ansi örvæntingafullar í kærastaleit. Lærðum svo nýtt lag sem verður líka í sýningunni. Það heitir My Junk og er úr Spring Awakening. Þar voru nokkrar sólólínur í boði og hann lét allar prófa að syngja einu sinni sólólínu og dreifði þeim svo. Það var ein lína sem mig langaði mjög að fá og viti menn...ég fékk hana! Var ekkert smá ánægð. Þetta er ekkert smá fallegt lag. Ég hef aldrei hlustað almennilega á þennan söngleik en James söngkennari er mikill aðdáandi tónlistarinnar og er búinn að vera að láta okkur syngja þetta og ég er mjög spennt að heyra restina. Músíkin so far er allavega að heilla mig.


Tókum svo pásu og eftir hana kom Jill danskennari inn og við fórum yfir atriðið sem við gerðum við There is nothing like a bloke (upphaflega: There is nothing like a dame úr South Pacific) í gær. Það gekk vonum framar. Renndum því tvisvar og létum það svo eiga sig. Svo sýndum við henni atriðið sem við í sameiningu með Andrew leiklistarkennara gerðum við lagið You can drive a person crazy úr Company. Henni leist ekkert smá vel á, var alsæl. Tók ekkert út en bætti inn allskonar litlu handa- og höfuðhreyfingum. Þetta er mjög flott atriði. Við sitjum allar á stólum sem snúa með bakið fram svo við sitjum svona klofvega á þeim og gerum allskonar hreyfingar á stólunum stöndum svo á stólunum og dönsum þar og setjumst aftur og klárum lagið þar. Mjög smart :P Þegar við vorum búin að gera þetta kláruðum við að kóreógrafía atriðið við The Boyfriend sem við byrjuðum á í danstímanum um morguninn. Það gekk vel og við kláruðum það.


Eftir tíma fórum við heim, fórum allar beint í sturtu og svo ætluðum við að borða saman í eldhúsinu en þar beið okkar ekkert sérstaklega skemmtileg aðkoma. Annar frystiskápurinn hafði sem sagt bilað og ræstingakonan hafði slökkt á honum...frábær hugmynd! :S Það var sem sagt FLÓÐ í eldhúsinu okkar. Við reyndum að moppa sem mest upp, borðuðum svo meðan við biðum eftir eftirlitsmanninum hérna á háskólasvæðinu. Hann kom þegar við vorum að klára og sagði okkur að taka skápinn úr sambandi (duhh? vorum búnar að því...) og hafa hurðina opna, restin af vatninu ætti að safnast saman í botni skápsins. Hmm, ef það flæddi út í fyrst sinn afhverju ætti það sama ekki að gerast aftur? Við keyptum þetta ekki alveg og ákváðum að fylgjast vel með skápnum og gólfinu í kvöld. Erum oftast í eldhúsinu hvort sem er á kvöldin. Jæja, allt kom fyrir ekki og enn flæddi vatnið svo við sáum ekkert í stöðunni annað en að taka allan klakann úr frystinum sjálfar svo við þyrftum ekki að synda um eldhúsið til að finna morgunmatinn okkar á morgun. Lauren snillingur var þvílíkt hörkukvendi og náði hverjum risaklupmnum á fætur öðrum og gerði mest allt :P Við reyndum allar að hjálpa en það komast bara takmarkað margar stelpur að einum frystiskáp í einu :P Við eyddum sem sagt mestum part kvöldsins í að affrysta fyrstiskápinn okkar...heimilislegt...good times!


Það eru enn pollar á gólfinu okkar því moppan hérna er frekar mikið glötuð...svo við létum þá bara vera. Eftir þetta mikla ævintýri spjölluðum við aðeins meira. Svo ákváðum ég, Lauren og Kirsty að æfa okkur saman því við erum allar í sama hópi. Æfðum hóplögin. Það var ekkert smá sem við eigum að kunna utanað fyrir morgundaginn. Ég kunni samt You can drive a person crazy því ég er smám saman búin að vera að reyna að sleppa nótunum á æfingum. Kunni líka The Boyfriend og My Junk nokkurn veginn. Svo áttum við að kíkja á ,,rappið" sem við sömdum sem er ekki beint rapp heldur svona talaðar rímur eiginlega. Frekar fyndið. Sömdum þetta um daginn og fjallar þetta um allt sem við þolum ekki við menn. Ég kíkti aðeins á það, ekki nógu mikið en við áttum ekki að kunna það utanað fyrir morgundaginn, það á að skipa þessu eitthvað niður á morgun því þetta er heví langt.


Jæja, ég er farin að sofa, er búin að vera dugleg að æfa, fyrir utan að æfa með Lauren og Kirsty æfði ég dansana sjálf og fór betur yfir textana og einræðuna mína. Það er reyndar alltaf einhver endemis hávaði á næstu hæð fyrir ofan. Við erum allar mjög afslappaðar en hressar hérna á fyrstu hæðinni en þær eru svo miklir hávaðaseggir á annarri hæð að það er hreint með ólíkindum.


Góða nótt


Hreindís

Mánudagurinn 4. ágúst

07. ágúst 2008 klukkan 08:38

Dagur 10


Mánudagur! Good times...það var nett erfitt að vakna í morgun því við spiluðum Monopoly svo lengi í gær... :P En, þegar það bíður manns skemmtilegur dagur þá breytir það stöðunni og ég dreif mig á fætur. Frekar fyndið hvað ég er aldrei svöng þegar ég vakna heima fyrir skóla eða vinnu eða eitthvað en hérna er ég alltaf svöng og borða alltaf góðan morgunmat áður en ég fer. Ég kann vel við rútínuna hérna. Vakna kl. korter í átta, klæða mig, rólegur morgunmatur með stelpunum, taka til dótið ef ég gerði það ekki kvöldið áður, taka strætó klukkan rúmlega níu, rölta í skólann, syngja, leika og dansa til fimm, fara heim, sturta, æfa/læra fyrir næsta dag, kvöldmatur, æfa meira, spjall og spil í eldhúsinu, sofa.


Þessa viku erum við í tímum fyrir hádegi og svo að æfa fyrir sýninguna eftir hádegi. Nema á föstudag og laugardag, þá æfum við fyrir sýninguna allan daginn. Fyrri tíminn í dag var Singing Reperatoire með James söngkennara. Það er svona einskonar tónlistarsaga. Hann sagði okkur frá nokkrum söngleikjatónskáldum og Becky sem er GSA neminn í okkar hópi og hópleiðtogi söng fyrir okkur lög eftir þessa höfunda og svo lærðum við og sungum saman þrjú lög. Mér skilst að í fullu námi þurfi krakkarnir að læra tvö ný lög á viku fyrir þessa tíma, fá gefið t.d. tónskáld, ákveðinn söngleik, tímabil eða eitthvað þema. Mjög áhugaverður og lærdómsríkur tími.


Seinni tíminn fyrir hádegi var svo Accent Class með Barböru Ward. Það var áhugavert, ég hef aldrei lært á svona mismunandi hreimi. Sennilega vegna þess að við höfum þetta ekki í íslenskunni. Okkur var skipt í hópa og það var einn ,,útlendingur" í hverjum hópi sem átti að kenna ensku stelpunum að tala ensku með hreim síns lands. Það var áhugavert að sjá stelpurnar hreinlega gefast upp á íslensku R og L og H og NG hljóðunum. Ég átti svo að læra að tala með Hampshire-hreim, sem er mjög einfaldur og venjulegur enskur hreimur, frekar svona latur eiginlega, svo það gekk bara mjög vel...good times...


Svo var hádegismatur og ég keypti bókina sem Gerry Tebbutt (Head of Musical Theatre hérna í GSA) skrifaði. Svona söngleikjahandbók, fjallar um söngleikjaformið og hjálpar manni að undirbúa sig fyrir prufur og svona. Ég fékk hann til að árita bókina fyrir mig, bara upp á gamanið.

Eftir hádegi vorum við að æfa fyrir sýninguna, eyddum fyrri helmingnum í að fara betur yfir lagið You can drive a person crazy úr Company og gera smá atriði við það með leikstjóranum og seinni helmingurinn fór í að gera kóreógrafíu við nýtt lag sem við vorum að byrja að æfa í dag. Við tókum sem sagt lagið There is nothing like a dame úr South Pacific eftir Rogers & Hammerstein og breyttum textanum í There is nothing like a bloke því það smellpassar inn í þemað okkar. Við kláruðum það atriði nokkuð vel í dag svo við gerum eitthvað glænýtt á morgun. Andrew leikstjóri sagði að við myndum læra þriðja stóra hópatriðið okkar á morgun.


Eftir skóla fórum við Ivana, Lauren og Kirsty að versla smá í Tesco stórmarkaðnum. Fórum á ofursæta bílnum hennar Lauren, nýr, rauður Austin Mini. Mig ar farið að vanta helstu nauðsyngjar eins og brauð, mjólk, eplasafa og morgunkorn og svona. Svo fórum við heim að borða og spjalla við fleiri í húsinu. Ég, Sarah og Ivana ætluðum í bíó á Mamma Mia þó að ég hafi séð hana áður, en það var uppselt á Mamma Mia svo ég fór bara heim en þær fóru á Batman myndina sem mig langar ekki beint að sjá. Ég er fegin að ég fór ekki. Þær eru ekki enn komnar heim og klukkan er rúmlega ellefu. Ég fór bara heim að spila með Kirsty, Leann, Lauren og Jenny. Ég, Lauren og Kirsty erum allar í sama hópi svo við æfðum okkur aðeins saman á lögunum og röddununum í þeim og fórum aðeins yfir kóreógrafíuna. Duglegar stelpur. Svo ræddum við allar heilmikið um góðar einræður og góð lög fyrir prufur og svona...frekar næst kvöld bara.


Er bara að fara að sofa í hausinn á mér núna, kannski ég lesi pínu í bókinni hans Gerry fyrst... :P


Góða nótt


Hreindís

Sunnudagurinn 3. ágúst

07. ágúst 2008 klukkan 08:37

Dagur 9


Ahh, rólegur dagur...ég svaf til rúmlega tíu og fékk mér þá ristað brauð í morgunmat í rólegheitunum. Tókum svo strætó í miðbæ Guildford og röltum þar um, ég, Ivana, Barbara og Yvonne. Við Ivana erum mjög ánægðar hvað Barbara og Yvonne ná vel saman því þá hangir Yvonne minn utan í okkur. Hún talar ekki um annað en hvað hún sé fátæk, hvað kærastinn hennar eigi við mörg vandamál að stríða og hvernig allt er í Sviss :P Æji, hún er ágæt í hófi samt :P


Ég fór á Starbucks með Ivönu og komst loksins á netið eins og sjá má á hversu mörg blogg komu inn þann 3. ágúst. :P Fékk svar við emailinu sem ég sendi Höllu, við ætlum að reyna að hittast í næstu viku þar sem hún er með stórfjölskylduna í heimsókn. Ég hefði getað farið til hennar á föstudaginn ef internetið hefði virkað á Starbucks þegar ég fór þangað til að kíkja á emailið mitt um daginn. Alla síðustu viku var bara starfsfólk þar sem sagði: ,,Sorry, I don't know how it works, do you think you can come back later?" En loksins í dag gat ég kíkt á emailið og skoðað fleiri myndir af fallegu litlu Emilíu, dóttur Unnar Elísabetar. Við röltum svo aðeins meira, borðuðum svo síðbúinn hádegismat. Eftir það kíktum við í nokkrar bókabúðir. Ég gleymdi að skrifa það í gær hvað mér finnst gaman að vera hérna með fólki með sama áhugamál og ég og geta eytt góðum tíma í að skoða bækur um leiklist og tónlist. Eins og í gær, í London, frábært að geta verið í meira en klukkutíma inni í leiklistarbúð og enginn með manni sem maður er með samviskubit yfir að stoppa svona lengi því honum eða henni gæti leiðst of mikið. Líka það að vera með fólki sem verður í alvörunni spennt þegar maður finnur loksins eintak af leikritinu sem maður er búin að vera að leita að eða leiklistarbók eða eitthvað...


Ég verslaði skóladagbók áðan þar sem íslensku skóladagbækurnar eru bara dead boring. Keypti fallega skóladagbók og skemmtilega penna og pennaveski og svona, mér finnst gaman að vera með skemmtilega litað og munstrað skóladót, þoli ekki að vera með skóladót. Ég held að ég ætli hreinlega ekki að versla meira nema eitthvað spes komi uppá. Veit ekki hvað er komið yfir mig síðan ég kom hingað út. Ég er búin að labba framhjá H&M án þess svo mikið sem að líta á það sem er í glugganum. Keypti reyndar eina peysu í H&M í London en hef ekki litið við búðinni hérna í Guildford. Ekki heldur Top Shop, Accesorize eða neitt. Mér verður bara illt við tilhugsunina að fara að máta föt núna...það er kannski ágætt því ég er búin að versla slatta af leiklistardóti :P = BÆKUR!


Þegar við komum heim vorum stelpurnar sem fóru heim yfir helgina farnar að týnast tilbaka sem við vorum glaðar að sjá, það er búið að vera tómlegt hérna. Settumst niður, ég og Ivana, með elskunum þeim Kirsty og Lauren sem eru báðar í mínum hópi og Sam og Emmu sem voru báðar á Intensive Acting námskeiðinu í síðustu viku og verða á Intensive Singing í þessari viku. Byrjuðum að spjalla bara og hittumst svo eina stelpu sem er nýkomin og verður á Intensive Singing námskeiði þessa viku og svo með mér á Intensive Dance vikuna eftir það. Hún heitir Leann. Við byrjuðum á einhverjum tímapunkti að spila á spil en skiptum svo yfir í Monopoly sem entist í nokkra klukkutíma. Var að koma inn á herbergi fyrir svona 20 mínútur og klukkan er að ganga hálf tólf. Spiluðum ábyggilega Monopoly í 4 klst. Fleiri bættust í spilið, en þegar við vorum sem flestar vorum við 10 en ekki allar að spila :P Við vorum s.s. þarna ég, Ivana, Sam, Lauren, Kirsty, Emma, Leann, Jenny, Yvonne og svo tvær nýjar stelpur í viðbót, Juliette og Rihann.


Ótrúlega skemmtilegt kvöld bara, rólegt og notalegt...spil, spjall og kvöldsnarl.


Ætla að fara að sofa, ætti að vera sofnuð :P


Knús,

Hreindís

Ferðasagan að detta inn í smá skömmtum...

03. ágúst 2008 klukkan 12:13

Jæja, ég er búin að setja inn ferðasöguna fyrir fyrstu átta dagana hérna fyrir neðan, það er ekkert sérstaklega mikið af möguleikum í boði í internetnotkun hérna, það er eiginlega bara Starbucks þar sem ég er núna og það lokar klukkan hálf sex :S og ég er búin í skólanum klukkan fimm :P En ég reyni að setja þetta inn í skömmtum.

Héðan er allt gott að frétta og allt gengur vel. Skólinn er frábær! Ég er hvorki búin að hitta Höllu né Sólveigu síðan ég kom þar sem Sólveig svarar ekki símanum sínum og ég er ekki með breska númerið hennar Höllu. En ég sendi Höllu email af bókasafninu þegar vð fengum klukkutíma þar inni um daginn og bað hana að láta í sér heyra. Hún var á klakanum í síðustu viku og fékk alla familíuna í heimsókn til London í gær svo við ætlum að reyna að hittast í næstu viku eða helgina eftir það :P Sem verður yndislegt!

Takk fyrir kommentin hérna að neðan þið sem skrifuðuð og MARÍA ÓLAFSDÓTTIR - ÉG SAKNA ÞÍN LÍKA! Svooooooooona mikið!!!

Knúskveðja,
Hreindís

Laugardagurinn 2. ágúst

03. ágúst 2008 klukkan 12:06

Dagur 8


Ég, Ivana, Yvonne og Barbara vorum í London í dag, Sarah kom ekki með okkur því hún ákvað að fara heim yfir helgina, hún er sem sagt frá Englandi. Við tókum lestina klukkan 10 á Waterloo station og tókum svo tube-ið inn á Piccadilly. Þar byrjuðum við á því að rölta og finna ódýra leikhúsmiða. Ég og Ivana keyptum miða á Billy Elliott, Barbara ákvað að sjá Les Miserables og Yvonne keypti miða á Wicked.


Eftir þetta fór Yvonne að túristast eitthvað því hún hefur aldrei komið til London áður. Ég, Ivana og Barbara fórum strax í Dress Circle leikhúsbúðina. Je minn, ég gæti búið þar, það er allt til. Geisladiskar, bækur, nótnabækur, minjagripir og allt tengt söngleikum aðallega og leikhúsi. Við versluðum allar alveg helling. Ég keypti þar fimm geisladiska (Legally Blonde söngleikinn, afmælisútgáfuna af Annie, með Annie 2 meðfylgjandi, þetta er diskurinn sem Lindsay og Molly vinkonur mínar í USA syngja á, svo keypti ég þrjá diska með Idinu Menzel...maðurinn í búðinni sagði við mig þegar ég var að fara að borga: ,,Would you by any chance be interested in having an autographed copy by Idina instead of that one you've got there?" Ég hélt það nú og fékk sem sagt áritaðan disk fyrir sama verð og hinn), svo keypti ég tvær bækur, eina sem er með svona staðreyndir um söngleiki fyrir alla daga ársins, svona hvað gerðist merkilegt í söngleikjum 7. maí eða 3. ágúst... og svo keypti ég The Sound of Music Companion sem inniheldur ALLT um Sound of Music. Barbara var næstum búin að fá taugaáfall af valkvíða því það var svo margt flott í þessari búð :P Skil hana vel, þegar ég var búin að finna mitt dót lokaði ég bara á allt sem var til þarna, annars hefði ég orðið gjaldþrota :P Ekki það að þetta var ágætis upphæð sem ég eyddi þarna :P En ekki í neinn óþarfa :P


Við fórum næst í Samuel French bókabúðina sem er víst sú besta með leikrit og leiklistarbækur. Ég fann loksins, LOKSINS einræðu sem ég er búin að vera að leita að. Hún heitir Her Big Chance eftir Alan Bennett. Ég verslaði fleiri bækur þarna: Acting in Musical Theatre heitir ein, svo keypti ég eina spunabók, eina um leiklistar- og upphitunarleiki, eina með svona gullkornum um leikhús og leiklist og eina með móðgunum og dónaskap úr Shakespeare, pínulítil svona gjafabók sem ég held við getum notað fullt í sýningunni okkar á laugardaginn kemur og svo gerði ég kostakaup og keypti ævisögu Julie Andrews fyrir aðeins 5 pund.


Næst fórum við aðeins í Covent Garden þar sem Barbara verslaði gjafir fyrir vini sína og familíu sem er eitthvað sem ég ákvað að gera sem minnst af. Keypti reyndar smá handa Yngva bróður, ætla að kaupa eitthað meira handa honum næstu helgi, af því hann er nú einu sinni bróðir minn :P Þyrfti nú eiginlega helst að komast á Denmark Street til að versla handa honum. Annars hefði nú annars ekkert átt að versla yfir höfuð því ég var með of þunga tösku á leiðinni út, hvernig verður hún á leiðinni til baka? Þess vegna vona ég svo innilega að mamma komi og við förum saman til London í tvo-þrjá daga og svo saman heim. Því þá getur hún komið með lítinn farangur með sér og tekið smá af mínu heim í staðinn :)


Kíktum aðeins í Disney búð og ég keypti þrjár sætar stílabækur fyrir skólann, þær eru alltaf svo dead boring heima í bókabúðunum þar og þær einu sem eru eitthvað sætar eru rándýrar svo ég ákvað að kaupa þrjár hérna fyrst þær voru ódýrar, keypti eina með Ariel, Litlu Hafmeyjunni sem er uppáhalds Disney prinsessan mín, eina með Þyrnirós og eina með Öskubusku :P Ivana fór í The Royal Opera House Shop með við Barbara misstum okkur í að skoða Disneydót og hún verslaði eitthvað ballettdót, tímarit og eitthvað sniðugt, sem eru með mjög fallegum ballettmyndum, ég skoðaði þau hjá henni, nennti ekki að lesa, skoðaði bara myndirnar :P


En, eftir leiklistarbókabúðir og Covent Garden röltum við á Drury Lane en þar eru allavega þrjár dansbúðir. Byrjuðum í Bloch, fórum svo í Dancia International og svo Sansha. Ég keypti ballettbol því minn sem ég keypti á netinu varð eftir heima :S, sokkabuxur og stuttbuxur. Ivana verslaði tvenna dansskó. Hún er svaka danspía, æfir ballett í fjóra tíma á dag...geðveiki...


Eftir dansbúðirnar þurftum við að rjúka því við ætluðum að hitta Yvonne og borða allar saman. Enduðum á McDonalds því við höfðum svo lítinn tíma. Fórum svo beint í leikhúsið með neðanjarðarlestinni, erum orðnar svaka klárar á það eftir daginn í dag, keyptum bara dagpassa í lestarnar og tókum alltaf tube-ið á milli staða.


Billy Elliott var frábær sýning. Mjög falleg sýning. Hverrar krónu virði. Frábær steppatriði í henni og mikið af mjög breskum húmor. Við Ivana skemmtum okkur rosalega vel þrátt fyrir þreytu eftir langan dag.

Sýningin var alveg þrír tímar en ég trúði ekki að klukkan mín væri rétt þegar ég leit á hana eftir sýninguna, leið ekkert smá hratt, sérstaklega fyrir hlé...


Eftir sýninguna hittumst við allar á Waterloo stöðinni og tókum lest heim, ég hef aldrei verið jafn fegin að setjast niður í ópersónulega eldhúsinu okkar og áðan. Við settumst niður, ég Ivana og Yvonne því Barbara er í öðru húsi, við spjölluðum um daginn og það sem við gerðum og fengum okkur smá að borða því við vorum svangar eftir að hafa borðað frekar óhollan og ónæringarríkan kvöldmat.


Ég er búin að heyra í mömmu, pabba og Yngva í vikunni, talaði við Yngva áðan, þeir í The Nellies eru að spila á Neistaflugi um helgina, eitthvað glatað hljóðkerfi þar og þeir rokkararnir ekki beint sáttir.

Ivana kom aðeins með mér inná herbergi og við hlustuðum aðeins á Legally Blonde og spjölluðum, svo fór hún og ég fór að skrifa þetta.

Ætla eins og oft, að horfa á einn FAME þátt og fara svo að sofa þó svo að klukkan sé nú þegar mjög margt, ég get sofið út á morgun!!! JEIJ...loksins! Ætlum samt að borða saman hádegismat stelpurnar sem vorum í London...leiðinlegt að segja það samt en hún Yvonne er nett skrítin, við Ivana föttum hana ekki alveg...hún er alveg 11 árum eldri en ég en er samt ótrúlega eitthvað mikið gelgja...svo er hún frá þýska Sviss...næstum Þjóðverji sem segir nú bara ýmislegt. :P


Jæja, góða nótt frá Guildford eftir langan og góðan dag í stórborginni London!


Hreindís!

Föstudagurinn 1. ágúst

03. ágúst 2008 klukkan 12:02

Dagur 7


Jæja, að verða vika síðan ég fór að heiman og so far er allt frábært bara. Varð agnarögn einmanalegt á leiðinni heim úr leikhúsinu á laugardaginn var en það er það eina. Ég er búin að eignast yndislega vini hérna. Sérstaklega ein stelpa sem heitir Ivana og er frá Serbíu. Hún er yndisleg. Allir aðrir eru frábærir líka en við bara smellum ótrúlega vel saman. Það er alveg magnað eiginlega. Hún verður líka í þrjár vikur sem er æði.


Það var erfitt að vakna í morgun, fór seint að sofa út af leikhúsferðinni og ferðalaginu frá London eftir sýninguna og til Guildford. En fyrsti tími var Improvisation eða spuni með Andrew leiklistarkennara. Það er sem sagt búið að ákveða að fyrst við erum bara stelpur í hópnum mínum að þá verði þemað okkar fyrir sýninguna ,,Karlmenn". Ætlum held ég að hafa feminískt þema bara...vera karlahatarar :P Mjög fyndið. Við eyddum því spunatímanum í að spinna hugmyndir út frá sönnum eða uppspunnum sögum í tengslum við karlmenn. Ég var í hóp með Sophie og Daisy, ég er farin að þekkja Daisy mjög vel en er að kynnast Sophie betur þessa dagana. Við notuðum sanna sögu sem ég sagði. Ætla nú ekkert að gefa neitt uppi en við skulum bara segja að hún tengist mér ekki beint heldur meira vinkonum mínum. Sophie fékk snilldarhugmynd sem við þróuðum svo saman. Andrew var rosalega ánægður með okkur og ákvað að okkar hugmynd og ein önnur væru bestar og skyldum við nota þær í sýningunni. Ég var mjög ánægð, fyrsta skiptið mitt að spinna á ensku og það gekk svona vel :P


Næsti tími var dans hjá Jill og þvílíkur tími, það var heitt inni í salnum og við tókum vel á því og svitnuðum ansi mikið. Gerðum upphitun, teygjur, spörk, snúninga og pirouettes. Svo byrjuðum við á nýrri rútínu. Dönsuðum við Big-Band útgáfu af Zoot Suit Riot. Geðveikt stuð, mjög svona old school Broadway musicals músík og kóreógrafía. Hinir hóparnir eru samt að dansa við Chicago tónlist og Wicked :S sem er eitthvað sem okkur langar mikið til að prófa. En Jill er samt betri kennari...


Svo var hádegismatur og við borðuðum og þurftum svo að labba smá í annað æfingahúsnæði sem er ekki í aðalskólanum. Þar áttum við að fara í Play Text tíma hjá Andrew en ákváðum að fyrst við værum komnar með svona skýra hugmynd um þemað og hvað við vildum gera ættum við að halda áfram með það. Við bjuggum til einskonar ljóð eða texta um allt sem fer í taugarnar á okkur við stráka og töluðum það í rythma. Hann vill nota eitthvað svoleiðis og þá kannski með einhverri smart kóreógrafíu eða eitthvað. Hljómar mjög töff. Svo fórum við í nokkra leiki, flissuðum okkur dauðar í morðingja (ekki sniðugt að láta 18 stelpur sitja og stara í augun á hvor annarri í lengri tíma, það endar alltaf í flisskasti :P, sérstaklega eftir það sem við vorum búnar að vera að gera á undan) og svo var tíminn búinn. Fórum aftur í aðalbygginguna.


Síðasti tími í dag var Choral Class hjá James söngkennara. Héldum áfram með You Can Drive A Person Crazy úr Company, sem er ansi flókið raddsetning. Kláruðum það, það sándar orðið vel bara finnst mér. Svo æfðum við lag úr Spring Awakening. Sem var sætt lag. Svo var skólinn búinn.


Ivana og ég og Caz, vinkona Ivönu fórum að borða á Wagamama sem er svona japanskur veitingastaður, mjög góður, og fórum svo heim. Ivana og ég fórum svo í búðina og keyptum okkur súkkulaði :P. Fórum svo aðeins á herbergin okkar, fórtum í sturtu og fórum úr skólafötunum og í þægileg föt. Hittumst svo aftur og borðuðum súkkulaði og spjölluðum. Ég spilaði íslenska tónlist fyrir hana og hún vildi endilega sjá myndir í tölvunni minni af vinum mínum og fjölskyldu.

Hey, eitt fyndið. Ég komst að því í dag að Becky sem er GSA neminn í mínum hópi og svona hópleiðtogi er jafngömul mér, reyndar næstum mánuði yngri...fædd 25. mars 1989. Ég sem hélt að hún væri svona 24 ára. Hún er hávaxin og fullorðinsleg í útliti en krakkaleg í sér svo ég hélt hún væri bara ung í anda en neinei, þá er það öfugt, akkúrat réttur aldur í anda en fullorðinsleg að sjá. Fyndið...frábær stelpa, ég á eftir að sakna hennar síðustu vikuna mína hérna.. :S


Edda Björg hringdi í mig áðan, held hún hafi ætlað að biðja mig að passa. Hún var ekki viss hvort ég væri farin út eða ekki. Þegar hún komst að því var hún voða spennt. Spurði um allt og ekkert. Vildi vita allt, yndislegt hvað hún hefur áhuga á því sem ég er að gera og vill vera involveruð. Sagðist vera svo ánægð með mig að vera að gera þetta, sagði að ég ætti heima í þessu sem mér fannst gott að heyra. Hún er frábær! Hún var líka ekkert smá ánægð að ég væri með einræðu úr Konan áður en hún var í því í Þjóðleikhúsinu.


Núna er ég bara að fara að sofa, snemma, þó það sé helgarfrí (JESÚS MINN hvað vikan er búin að líða hratt). Ég, Ivana, Sarah og Barbara ætlum til London á morgun. Ætlum að kíkja í leiklistarbókabúðir, dansverslanir (þar sem ég þarf að kaupa mér ballettbol fyrir Intensive Dance vikuna og fleira :P), H&M (en ekki hvað?) og fleira. Ivana og ég ætlum svo að reyna að sjá Billy Elliott á morgun. Hún er ballerína og sú sýning fjallar auðvitað um ballett og mig langar svooo að sjá þá sýningu. Hlakka til, þetta verður bara stuð. Svo þarf ég líka að kaupa pakka handa fallegu, litlu dóttur hennar Unnar minnar sem mun heita Emilía.


Jæja, er farin að horfa á einn FAME þátt og svo að sofa.


Hreindís

P.S. Íslendingar - gangið hægt um gleðinnar dyr og skemmtið ykkur fallega um Verslunamannahelgina hvar sem þið verðið!

Fimmtudagurinn 31. júlí

03. ágúst 2008 klukkan 12:01

Dagur 6


Ég var frekar þreytt í morgun sem er frekar skrítið því ég svaf í rúma átta og hálfan tíma. Er búin að sofa mjög vel hérna, fer alltaf snemma að sofa. Stelpurnar voru samt margar hverjar enn þreyttari því hluti af hópnum fór í leikhús í gær. Þau sem völdum söngleikina Marguerite eða Never Forget það er segja. Þau skemmtu sér öll svaka vel, krakkarnir sem fóru á Marguerite voru ansi spennt ennþá eiginlega því Andrew sem er leiklistarkennari míns hóps hérna er í sýningunni og þau fengu að skoða sviðið og svona og sumir fóru baksviðs eftir sýninguna.


Fyrsti tíminn í morgun var Acting Song Lyrics hjá Andrew sem er leikstjórinn/leiklistarkennarinn okkar. Mér fannst það erfitt. Þar átti maður að standa fyrir framan alla og leiklesa söngtextann sinn. Fyrir utan að ég var með frekar erfiðan texta, mikið af líkingum og stuttar línur og svona þá fannst mér erfitt að gera þetta á ensku, mér finnst þetta nógu skrítið á íslensku :P Ég var því ekki alveg sátt við sjálfa mig eftir tímann en tíminn sem var á eftir bjargaði því. Það var tími sem heitir Presenting Your Speech þar sem Amanda Fawsett var kennari. Hún er svo yndisleg. Ég elska tímana hennar. Mér líður vel þar, líður eins og ég geti sigrað heiminn. Hún var að ráðleggja okkur varðandi efni til að nota í prufum því hún er ein af þeim sem er í GSA prufunum. Við byrjum reyndar alltaf tímana hennar á skemmtilegum einbeitingarleikjum. Svo fórum við hringinn og allir sögðu hvaða mónólóg þeir höfðu valið eða verið að nota og hvernig þeir myndu kynna hann í prufu. Sérstaklega ef hann er úr óþekktu leikriti. Hún lét okkur líka vita ef við vorum með mónólóga sem allir aðrir eru að gera líka, sem er auðvitað ekki gott. Hún var rosalega ánægð með efnið mitt, en ég er með mónólóg úr leikriti sem heitir Konan áður, það var sett upp í Þjóðleikhúsinu síðasta leikár. Það er alls, alls ekki þekkt leikrit en henni leist vel á það sem ég sagði henni frá og sýndi henni úr handritinu. Ég nefndi líka við hana nokkra af hlutunum sem Aggi er búinn að vera að ráðleggja mér að gera og henni leist mjög vel á þetta allt saman. Aggi klikkar ekki!


Svo var kominn hádegismatur. Eftir mat var Song Presentation með Andrew og James söngkennara. Það var gaman. Þar áttum við að syngja lag sem við vorum búnar að undirbúa fyrir hópinn. Ég söng Send in the Clowns. Ákvað að vera hugrökk og vera fyrst til að syngja. Það var bara mjög fínt, þá gat ég bara hallað mér aftur og hlustað á hinar í rólegheitunum. Ég fékk mjög fína uppbyggjandi gagnrýni frá þeim báðum en overall voru þeir mjög ánægðir bara. Andrew er svo fyndinn, eftir að ég var búin að syngja og var svona að ná mér niður því þetta er mikið tilfinningalag þá lyfti hann annarri augabrúninni (eins og hann gerir oft) og sagði: ,,That felt good, this is your thing, your comfort zone - singing...am I right, ah?" Fyndinn gaur...


Síðasti tími var svo dans hjá Jill. Það eru eiginlega uppáhalds tímarnir mínir so far. Ótrúlegt að finna muninn á sjálfri mér í þessum tímum á hverjum degi. Í dag er ég miklu liðugri en ég var á mánudaginn þegar ég kom hingað. Mögnuð - GÓÐ - tilfinning, að finna árangur erfiðis svona fljótt. Í dag lærði ég að gera pirouette almennilega (kann ekki alveg að stafa það rétt... :S). Gekk brösulega til að byrja með en var komið nokkuð vel í lokin. Ég er líka loksins búin að mastera þessa snúninga yfir gólfið, geri þá ennþá frekar hægt en ég get allavega gert þá. :D


Við fórum nokkrar snemma úr danstímanum til að fara heim, fara í sturtu, skipta um föt og svona því við fórum í leikhús í kvöld. Sáum Avenue Q. Oh my, það var svoooo gaman. Frábært sýning og æðisleg tónlist. Úff, ég næstum hljóp upp í hléinu til að kaupa diskinn, ég þekkti músíkina ekki vel, kannaðist við örfá lög. Fórum með lest frá Guildford og á Waterloo stöðina í London og þaðan með tube-inu á Leicester Squere og svo sömu leið til baka eftir á. Barbara, Yvonne, ég og Tex borðuðum á McDonalds fyrir sýninguna því við höfðum ekki tíma til að borða neitt almennilegt á almennilegur stað :P Það var bara fínt samt...En, þetta var bara frábær sýning. Ég var pínu efins því ég hélt, þó að allir séu búnir að segja að þetta sé frábært, söngleikur með brúðum...hversu skemmtilegt getur það verið? En þetta var æði...gaman að sjá leikarann og brúðuna saman (leikararnir héldu bara á brúðunum á sviðinu) því brúða sýnir auðvitað engin svipbrigði en leikarinn var rödd og svipbrigði brúðunnar og svo voru sumir leikarar ekki með neina brúðu heldur léku bara karakterana sína sem fólk. Mjög gaman, hressandi sýning.


Við Ivana vorum pínu svangar þegar við komum heim svo við borðuðum smá og fórum svo í herbergin okkar.


Er farin að sofa núna, klukkan er allt of margt...úff...hálf eitt!


Góða nótt


Hreindís