Ferđasagan ađ detta inn í smá skömmtum...
Jæja, ég er búin að setja inn ferðasöguna fyrir fyrstu átta dagana hérna fyrir neðan, það er ekkert sérstaklega mikið af möguleikum í boði í internetnotkun hérna, það er eiginlega bara Starbucks þar sem ég er núna og það lokar klukkan hálf sex :S og ég er búin í skólanum klukkan fimm :P En ég reyni að setja þetta inn í skömmtum.
Héðan er allt gott að frétta og allt gengur vel. Skólinn er frábær! Ég er hvorki búin að hitta Höllu né Sólveigu síðan ég kom þar sem Sólveig svarar ekki símanum sínum og ég er ekki með breska númerið hennar Höllu. En ég sendi Höllu email af bókasafninu þegar vð fengum klukkutíma þar inni um daginn og bað hana að láta í sér heyra. Hún var á klakanum í síðustu viku og fékk alla familíuna í heimsókn til London í gær svo við ætlum að reyna að hittast í næstu viku eða helgina eftir það :P Sem verður yndislegt!
Takk fyrir kommentin hérna að neðan þið sem skrifuðuð og MARÍA ÓLAFSDÓTTIR - ÉG SAKNA ÞÍN LÍKA! Svooooooooona mikið!!!
Knúskveðja,
Hreindís
kossar og knús Mammsla
kveðja Herdís og co
gott að allt gengur vel og að þetta sé svona gaman:D
hlakka til að sjá þig dansa;)
sakna þín skvís :*