Eitt og annað bara...
Ótrúlegt hvað ég hef innilega ekki nennt að blogga síðan ég kom heim...
En ég ákvað að skella nú inn smá bloggi.
Vikurnar í Guildford voru stórkostleg reynsla. Ég er svo þakklát fyrir þessar vikur. Ég lærði svo ótrúlega margt, leiklistar-, söng- og danstengt og líka bara um sjálfa mig. Ég var nú viss um að þetta væri það sem mig langaði að gera þegar ég fór út en ég fann á meðan ég var úti að þetta er ekki bara það sem mig langar að gera heldur er þetta sá staður þar sem ég á heima. Ég get ekki beðið eftir að hella mér út í svona nám af fullum krafti þó svo að það gæti þurft að bíða vegna þessa hrikalega ástands í efnahagsmálum :S
Ég eignaðist yndislegar vinkonur á þessum vikum. Þetta var rosalega stíf vinna og við þurftum að vinna með intensíft saman. Ég bjóst nú alveg við því að kynnast skemmtilegum krökkum en ekki að eignast alvörunni VINI! Svona friends-for-life vini. Þær voru yndislegar allar með tölu.
Ég ætlaði að vera í London núna, að hitta fólk, halda upp á afmæli Agnesar minnar og fara í leiklistartíma og eitthvað. Ég hætti við, þegar gjaldeyriskreppan skall á. Ég var fegin að hafa tækifærið til þess að hætta við. Ekki gaman að vera í London núna, Íslendingar kallaðir terroristar og eitthvað :S Agnes er þar...ég vona að hún komist heim :P
Lífið er komið í rútínu...eða svonaaaa...ég er á lokaönninni minni í MH núna, útskrifast 20. desember. Mér finnst MH yndislegur skóli og ég er búin að njóa tímans míns þar alveg rosalega. En ég er samt fegin að það sé komið að lokum á þessu. Mér finnst ég búin að eyða nógum tíma þarna og fá það sem mér finnst maður eigi að fá út úr menntaskólaárunum. Ég veit hvað ég vil gera næst og hlakka til að leggja af stað í það...
FÍH er skemmtilegur eins og alltaf, þó að það vanti allt gamla "gengið" mitt, eða svo til. Lísa mín sagði skilið við skólann, Ágústa líka, María er útskrifuð, Thelma hamast í háskólanámi (duglega stelpa) í iðjuþjálfa svo þó svo að hún sé í skólanum ennþá sér maður ekkert of mikið af henni, Svenna sé ég aldrei...Erlurnar mínar eru báðar þarna ennþá, sem betur fer...ekki það að ég hitti þær eitthvað í skólanum samt :S Rósa er samt ennþá,,hjúkket! En það er gott fólk komið í þeirra stað svona "on a daily basis" þó svo að enginn komi í raun í staðinn fyrir alla þessa yndislinga. Ég sakna Lísu minnar svakalega úr skólanum. Við vorum svo mikið saman í tímum í fyrra. Sálarmessuna unnum við líka hlið við hlið, alla daga. Unnum vel saman þó svo að við þyftum að taka smá pásu frá hvor annarri eftir allt þetta samstarf...æji...hún er best! :D Sakna líka Ágústu, það er svo gott að umgangast hana, eitthvað svo heil sál og dásamleg. Sumt fólk er svona, manni líður bara alltaf betur eftir að hafa hitt það...Ágústa er þannig...
Þess vegna hlakka ég til á morgun. Lísa og Ágústa eru að frumsýna í Madonnu-showinu á Broadway og Lísa var svo yndisleg að bjóða okkur stelpunum. Við ætlum að fara ég, Erlurnar, Thelma, Rósa og einhverjir fleiri held ég. Það verður stuð.
Ég fer líka á Fólkið í blokkinni annað kvöld. Fer á það klukkan sjö, fer svo beint á Madonnu showið. Þetta verður frábært kvöld. Svo er elsku besta Unnur Elísabet að gifta sig á sunnudaginn, hlakka líka til þess. Það verður yndislegur dagur. Við vinkonur hennar gæsuðum hana um daginn, það var svaka stuð! Vorum allar himinlifandi með daginn...
Ég fór á Macbeth í gær. Það var...blóðugt! Frábær sýning, ég mæli alveg með henni fyrir alla nema viðkvæmar sálir :P Rúnar Freyr og Edda Björg alveg að brillera, fleiri góðir, þau einstök. Ég held ég hafi aldrei séð Rúnar svona góðan...svei mér þá...
Það eru þrjár yndislegar stúlkur fæddar í mínu umhverfi. Anna Þórarna Agnarsdóttir, dóttir hans Agga míns fæddist 28. maí. Fallegust í heimi, ég er svo stolt að fá að vera Hreindís frænka. Emilía Álfsól Gunnarsdóttir, dóttir Unnsu minnar fæddist 26. júlí, daginn sem ég fór út. Hún er yndisleg, svo falleg. Lítil dóttir Þóru Sifjar sem er með mér í FÍH og er stjúpmamma Anítu minnar fæddist 17. september. Falleg er hún snótin, ég hef reyndar ekki séð hana í eigin persónu, bara myndir. Til hamingju allir foreldrar prinsessanna þriggja!
Hérna eru myndir af þeim:

Anna Þórarna Agnarsdóttir, fædd 28. maí

Emilía Álfsól Gunnarsdóttir, fædd 26. júlí
Litla óskírða dóttir Þóru Sifjar og Daða.
Jæja, úff, þetta blogg er orðið langt. Það endar alltaf þannig hjá mér. Blogga sjaldan en þegar ég geri það verður bloggið kílómetri að lengd :P
Ég kveð!
Hreindís
P.S. Ég fór í prufu fyrir söngshowið í FÍH þar sem tónlist herra Burt Bacharach verður tekin fyrir. Ég komst inn. Það voru færri valdir núna en áður...við erum bara 10. Erlurnar mínar komust inn líka...þetta verður stuð!
P.S.2 Viljiði spá, ég nefndi efnahagsörðugleikana bara tvisvar í þessu bloggi! Það hlýtur að vera met fyrir Íslending...