Aðalvalmynd

Guildford...London...

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Útskriftartónleikar Þórunnar

28. apríl 2006 klukkan 14:14
Já, hún Þórunn Arna mín (ef mér leyfist að eigna mér snillinginn pínu smá) hélt lokatónleika sína frá Listaháskóla Íslands í gærkveldi og AÐ SJÁLFSÖGÐU var ég þar. Tónleikarnir voru frábærir. Ég varð sko ekki fyrir vonbrigðum. Þemað á tónleikunum voru söngleikir, ég heyrði því fleygt á milli fólks eftir tónleikana að þetta sé gamall draumur hjá Þórunni að safna saman þessum söngleikjalögum og flytja þau. Það komu sjö manns sem voru með henni í Annie, en fyrir utan mig voru það Emma, Árni Beinteinn, Lilja Björk, Bjartmar, Bryndís Petra og Íris María.

Tónleikarnir byrjuðu á því að Þórunn og Selma Guðmundsdóttir píanóleikari komu á svið og Þórunn var eins og prinsessa eða meira eins og postulínsdúkka kannski. Æðislegir kjólar sem hún var í. Fyrir hlé var flutt tónlist eftir íslenska höfunda. Það voru lög úr söngleikjum eins og Allra meina bót, Ég er gull og gersemi, Kalli og sælgætisgerðin og Pétur Gautur. Mér þótti gaman að því að hún söng einmitt tvö af mínum uppáhalds söngleikjalögum. Það voru lögin Gettu hver hún er og Það sem ekki má en það voru tvö síðustu lög fyrir hlé. Aðeins fyrir hlé skipti hún um undirleikara og þá var með henni á sviðinu jazztríó. Píanó, trommur og bassi.

Í hléinu spjallaði ég nú bara við Annie fólk og það var ljómandi gaman.

Það er ekki hægt að segja annað en að seinni hluti hafi byrjað með stæl. Hún kom syngjandi inn og söng lagið Ifeel pretty úr West side story. Með henni sungur fjórar skólasystur hennar. Mikið atriði með því lagi þar sem fegurðadrottningarborði, kóróna, sproti og það að veifa eins og drottning komu við sögu.

Eftir hlé var bara flutt tónlist eftir erlenda höfunda, menn á borð við Cole Porter, en stundum með íslenskum textum. Lögin voru t.d. úr Túskildingsóperunni, My fair lady (en þau lög voru mjög skemmtileg, flutt með miklum tilþrifum sum hver), Meet me in St. Louis, Leave it to me og fleirum sem ég man ekki í augnablikinu. Lög eins og Just you wait, My heart belongs to daddy og fleiri vöktu mikla lukku og endurtók hún meira að segja það síðarnefnda.

Eftir flutning laganna var mikið klappað, fólkið reis út sætum og klappaði hana upp aftur og aftur. Hún tók nú bara eitt aukalag en hneigði sig margoft. Svo bað hún alla um staldra við eftir tónleikana og skála með sér. Bjartmar, Emma, Árni, Lilja og Íris stoppuðu nú ekki til þess en ég og Bryndís Petra vorum báðar í smá stund. Ég færði henni rósir og stoppaði í smá stund á meðan ég beið eftir að mamma og pabbi myndu sækja mig.

Þannig að Þórunn, ef þú lest þetta, takk kærlega fyrir þessa frábæru skemmtun. Ég hef aldrei skemmt mér svona vel á nokkrum útskriftartónleikum.

Ég ætlaði að setja mynd EN svo virðist sem að alltaf þegar ég reyndi að taka mynd af henni á Annie-æfingum/sýningum þá tók ég ALLTAF mynd af henni og Írisi Maríu saman, ég á milljón myndir af þeim (eða meira svona 3) svo Íris María fær að fljóta með á mynd...



Þórunn er þessi ljóshærða...

En þangað til næst
Hreindís Ylva

Þriðji síðasti skóladagurinn!

26. apríl 2006 klukkan 14:13

Ahh, nú eru bara þrír dagar eftir af skólanum. Síðasti kennsludagur í MH er á föstudaginn. En svo taka prófin við og ég er svo sem með alveg ágæta prófatöflu. Reyndar eru heimspeki- og náttúrufræðiprófin beint á eftir hvort öðru, á þriðjudegi og miðvikudegi en ég held ég klóri mig alveg fram úr því.

En að skemmtilegri málum. Ég sá þrjár sýningar um helgina, fyrir utan Hafið bláa náttúrulega. Ég sá Forðist okkur en það má lesa allt um þá ferð í síðasta bloggi.
Ég sá líka Íslenska fjölskyldusirkusinn sem er sýning leikfélags MH. Það var frábær sýning hjá krökkunum og stóð alveg fyllilega undir þeim væntingum sem ég hafði, en þær voru ansi miklar miðað við dómana sem þau fengu.
Svo sá ég Ronju Ræningjadóttur sem var alveg ágætis sýning. Ekki sýning árisins því miður en ágæt samt. En það sem var samt best við þessa leikhústörn mína var að hún var alveg gjörsamlega ókeypis :D Árni Beinteinn bauð með og Lilju á Forðist okkur og  mér og Maríu á Ronju og svo fá allir sem eru í NFMH frítt á MH-sýninguna.


Sem sagt, margt skemmtilegt búið að gerast en líka margt skemmtilegt að hlakka til. Tónleikarnir hennar Þórunnar Örnu á morgun. Ég fékk svona boðskort í pósti í gær, agalega sætt og æðisleg mynd af henni á því. Gaman að hún skyldi senda mér svoleiðis. Ég ákvað nú að fara á þessa tónleika fyrir rétt um fjórum mánuðum eða eitthvað og er búin að vera að hlakka til síðan, er þess vegna orðin ansi spennt. Svo er ég líka að fara á tónleika með Eivöru, Ragnheiði Gröndal og Sínfóníuhljómsveit Íslands á föstudaginn. Það verður líka gaman. Svo erum ég og Bjartmar að fara að byrja að æfa fyrir keppnina. Það verður LÍKA gaman. Það er sem sagt bara gaman, gaman hjá mér núna. En prófin eru nú samt að setja smá strik á þennan langa gleðireikning minn.


En þangað til næst

Hreindís

Forðist okkur!

22. apríl 2006 klukkan 04:40

Hæhæ!

Ég fór að sjá Forðist okkur í kvöld en það er sýnt á Litla sviði Borgarlekhússins . Vá, hvað ég er fegin að ég missti ekki af þessari sýningu. Gjörsamlega brilljant. Ég held ég geti alveg fullyrt að íslenskt leikhúslíf á ekkert nema gott í vændum ef þetta eru þau sem eru að útskrifast úr leiklistinni núna. Alveg frábærir krakkar. Verkið er náttúrulega bara fyndið. Hugleikur auðvitað snillingur og þetta er vandasamt verk að koma djókinu hans á svið, þar sem þetta eru svona einnar línu teiknimyndasögur í flestum tilfellum. En það var bara frábærlega vel gert og skemmtilegar lausnir á mörgum vandamálum eins og t.d. salurinn. Áhorfendur sitja á skrifborðsstólum í miðjum salnum vegna þess að við verðum að geta snúið okkur í heilan hring þar sem leikritið gerist allt í kringum okkur. Auk hópsins sem er að útskrifast léku í verkinu Valur Freyr Einarsson sem gerir líka handritið eftir sögunum hans Hugleiks og Aðalheiður Halldórsdóttir dansari. Gaman líka að þetta varð ekkert sundurlaust, en ég gæti trúað að það hafi verið nokkuð erfitt að gera heilsteyptan söguþráð úr teiknimyndasögunum hans Hugleiks. En það virtist ekki vera, sýningin hafði upphaf, ris, hápunkt og svo var endir þar sem var unnið nokkuð mikið úr öllu. Ja, svei mér þá, ég er bara alveg í skýjunum með þessa sýningu.

En krakkarnir sem eru í nemendaleikhúsinu í ár heita: Birgitta Birgisdóttir, Dóra Jóhannsdóttir, Halldóra Malín Pétursdóttir, Jörundur Ragnarsson, Magnea Björk Valdimarsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Sveinn Ólafur Gunnarsson og Víðir Guðmundsson.



En það lítur nú svo sem út fyrir það að ég muni eyða helginni í leikhúsi. Var náttúrulega á þessari sýningu núna, svo er æfing á Hafinu bláa á morgun og líka á sunnudag og svo sýning á sunnudag líka á Hafinu bláa, eins gott kannski, ég þarf að fara að rifja upp hvernig eltiljós lítur eiginlega út, svo langt síðan síðasta sýning var, skrítið að vera ekki að sendast eftir súkkulaði handa Jónsa einu sinni í viku, haha...(einkahúmor, Agnes!). En jájá þetta verður fínt að byrja aftur. En svo ætluðum við stelpurnar á MH sýninguna á morgun EN það er uppselt svo það lítur nú bara út fyrir að við missum af þeirri sýningu sem er skítt, þau hafa nefnilega fengið alveg fantafína dóma. En það kemur sýning eftir þessa sýningu svo við verðum bara að bíta í það súra epli!

Er að hugsa um að fara að henda mér í háttinn, það er bara "rise and shine" snemma í fyrramálið (þó það sé laugardagur) og fara á æfingu, á að vera mætt niður í Austurbæ klukkan hálf tíu. Þetta fær maður fyrir það að búa uppi í Mosfellsdal, þarf alltaf að leggja alveg rosa snemma af stað. En það er þess virði.

Kv. Hreindís

Gleðilegt sumar!

21. apríl 2006 klukkan 02:09
Hæhæ

Í dag er sumardagurinn fyrsti og það þýðir bara eitt fyrir mig...SPILAMENNSKA MEÐ SKÓMOS. Núna síðustu ár hefur það verið fastur liður hjá mér á þessum degi að spila hérna í Mosó með lúðrasveitinni. Í dag var engin undantekning. Það voru meira að segja tvær spilamennskur. Fyrst við íþróttahúsið og svo við nýju sundlaugina og íþróttahúsið hjá Lágafellsskóla.

Annars fór dagurinn minn bara í leti eiginlega. Fór upp í hesthús, til ömmu og afa, svo vorum ég og mamma bara að horfa á Eurovision-safndiskinn okkar (DVD með öllum sigurvegurunum og eftirminnilegum keppendum). Mjög kósí. Alltaf gott að glápa eitthvað með mömmu!

En það er margt svona smávægilegt sem hefur verið að valda mikilli gleði hjá mér undanfarið og margt sem ég hlakka til. Til dæmis talaði ég við hann Bjartmar í gær og við ætlum að fara að æfa atriðið fyrir keppnina, það verður bara gaman. Svo hlakka ég alveg rosalega til að fara á tónleikana hennar Þórunnar í næstu viku. Svo var svona ,,fundur" hjá okkur stelpunum í Tónvinnsluskólanum í gær og við vorum að plana tónleikana okkar. Ekki alveg komin endanleg dagsetning á þá ennþá en ég mun láta ykkur vita hér. Ég er líka held ég að fara í leikhús á morgun. Árni Beinteinn bauð mér á Forðist okkur, haldiði að það sé herramaður.

Svo er líka smá leyndó í bígerð hjá mér sem ég er ferlega spennt yfir.

En þó að það sé margt skemmtilegt að gerast þá er prófkvíðinn aðeins að byrja að læðast aftan að mér. Sérstaklega fyrir stærðfræði, heimspeki og náttúrufræði. Ég held að hitt verði ekkert mál. Ég skil þetta ekki alveg, ég hef aldrei fengið prófkvíða áður, þetta byrjaði bara svona rosalega heiftarlega á þessari önn. Ég er ekki alveg að skilja þetta.

En ég hef svo sem ekkert meira skemmtilegt að segja ykkur svo að ég kveð bara að sinni!

Hreindís Ylva

Gleðifréttir OG óheillasögur!

18. apríl 2006 klukkan 00:46
Hæhæ allir

Hvað haldiði góðir hálsar? Ég var að komast að því rétt í þessu að ég og Bjartmar erum síðust á svið í dægurlagakeppninni. Jess...frábært að vera síðust! Ég er rosalega ánægð með það!

En í dag er ég bara búin að vera heima að læra. Mamma og pabbi fóru á rúnt upp í Borgarfjörð, Yngvi var allan daginn í hesthúsinu með Gretti svo ég var bara ein heima. Það var ágætt, ró og næði og svona.

En ég get nú stundum verið alveg einstaklega óheppin og dagurinn í dag er greinilega ekki til heilla hvað mig varðar. Í hádeginu ætlaði ég að hita upp smá uppstúf frá því í gærkveldi en neinei, það var ofar minni getu, þann brann við. Hef nú reyndar mér til málsbóta að ég hef aldrei gert þettra áður og það er víst mjög oft sem að uppstúf brennur við. Mamma gerði bara nýtt! En svo var ég áðan að spjalla við mömmu í eldhúsinu og hallaði með upp að borðinu með bakið í borðið og svo var ég að teygja mig í eitthvað tímarit og rann aðeins með bakið eftir borðinu og haldiði ekki að ég hafi fengið helv... 2 sentímetra langa flís í bakið. Ekki þægilegt. Svo var eiginlega ennþá óþægilegra þegar pabbi tók hana úr vegna þess að hún var svo löng. Þannig að núna er ég með PLÁSTUR Á BAKINU! Hafiði heyrt það kjánalegra?

En ég hef ekki fleiri óheillasögur að segja í þetta skiptið svo ég kveð bara!

Hreindís Ylva

Ég og Bjartmar

Hér er svo mynd af mér og Bjartmari tekin baksviðs á sýningu, á svosem alveg betri mynd af okkur saman, en ekki á tölvutæki formi. Bæði frekar skrítin þarna, ég með alveg sleiktustu hárgreiðslu Í HEIMI!

Páskadagur!

17. apríl 2006 klukkan 02:27
Já, ansi skemmtilegt þetta bloggkerfi. Ég kann mjög vel við það. Held ég haldi áfram að nota það.

Ég setti inn myndir úr afmælinu hennar Fanneyjar sem var reyndar fyrir löngu síðan en ég hef bara ekki asnast til að setja þær inn fyrr...En njótið þeirra. Ég setti líka inn myndir undir heitinu ,,Myndir", það eru bara svona myndir úr ýmsum áttum þar. Það komast svo fáar myndir þarna að þetta eru bara svona nokkrar stakar.

En ég fór í fjölskylduboð til ömmu og afa í dag. Það var voða kósí. Öll föðusystkini mín, makar, börn og barnabörn þeirra. Reyndar bara eitt þeirra komið með barnabörn. En það var ágætt að hitta alla, við hittumst svo sjaldan, ég hef ekki reglulegt samband við næstum því alla þar, kannski í mesta lagi þrjár frænkur mínar eða eitthvað.

Svo eftir það komum við bara heim og ég fór smá í tölvuna og svo var matur. Uppáhalds maturinn minn á borðum, hangikjöt og uppstúf. Svo fór ég bara aftur í tölvuna í ,,Hver er maðurinn?" með Maríu í milljónasta skipti í vikunni. Naumast að við nennum að vera í þessum leik!

Au revoir
Hreindís Ylva

Haha...Hver er maðurinn? félagi minn

Haha...,,Hver er maðurinn?" félagi minn!!!

Testing, testing...

16. apríl 2006 klukkan 07:02
Ég veit hvað þið eruð að hugsa, já af hverju getur hún ekki andskotast til að ákveða hvaða bloggkerfi hún vill nota. Málið er bara það að ég er eitthvað ekki að fíla blog.central.is og prófaði þess vegna blogspot en fílaði það ekki og svo rakst ég á þetta og ákvað að prófa. Mér líst mjög vel á þetta hingað til nema það er ferlega lítið pláss fyrir myndir í myndaalbúminu svo ég ákvað að gera það bara á sama hátt og á blog.central.is, setja myndirnar bara inn á svona undirsíður. Þetta eru reyndar sömu myndir og ég var með á gömlu síðunni nema að ég er að setja inn núna úr afmælinu hennar Fanneyjar sem var í janúar og eitthvað smá pínu frá Eurovision. Endilega fylgist með því.

Endilega takið líka þátt í skoðanakönnuninni, kvittið í gestabókina og skoðanir!

Kv. Hreindís