Aðalvalmynd

Guildford...London...

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Ferðasagan frá Ítalíu!

29. júlí 2006 klukkan 04:56

Ég var að enda við að skella inn ferðasögunni frá Ítalíu á síðuna. Ég veit nú ekki hversu gaman aðrir en ferðafélagar mínir hafa af henni en verði lúðrasveitarkrökkunum að góðu og skemmtið ykkur vel við lestuinn. Ég set myndirnar svo inn um leið og ég get.

Kv. Hreindís

Rock Star: Supernova í gangi hérna!

27. júlí 2006 klukkan 05:42
Jæja, þá er Ísmedia námskeiðið byrjað og búið, það endaði með að ég held bara mjög glæsilegri sýningu á stóra sviðinu í Austurbæ. Við vorum sem sagt í síðustu viku átta krakkar saman á leiklistarnámskeiði í Austurbæ. Við vorum mest í að vera að gera spuna og grúska svo í þeim og fullvinna þá. Svo á endanum moðuðum við saman sex spunum sem við gerðum og settum þá saman heilsteypt verk í sex senum með mjög svo súrrealískum tenginum sem samanstóðu af öskrum og hlaupum fram og til bara með borð, stóla og önnur tilfallandi húsgögn. Flott samt. Sýningin var frekar ,,ógeðsleg" ef svo má orða það. Hún fjallaði um skilnað, rasisma og barnaperra. Við sýndum samt líka tvo kómedíuspuna svo að foreldrar og aðrir gestir í sal myndu ekki halda að við værum alveg snar og svo sýndum við líka smá upphitun.

Þetta var æðisleg vika og Móna, Katrín Helga, Selma, Gunni, Alexandra, Agnes og Katrín - Takk fyrir vikuna. Ég vona að ég sjái sem flest ykkar á fundinum með þeim sem komust inn. Vegna þess að....ÞAÐ GERÐI ÉG! OG AGNES! Svo vitum við að Móna komst líka inn en meira vitum við ekki.
 Þetta kemur svo allt betur í ljós á morgun þegar við hittumst öll í fyrsta skipti. Við ætlum að setja þetta upp á alveg ofurgóðum tíma. Frumsýnt á menningarnótt.  Ég tók rúntinn með mömmu og pabba og keyrði til hennar Regínu í kvöld. Var að ná í smá dóterí hjá henni. Upptöku af tónleikum og eitthvað. Hún gaf mér líka myndir af prinsessunni sinni henni Anítu sem ég er búin að vera að passa. Rosa gaman, ég átti engar myndir af henni. Þær eru komnar á góðan stað á myndaveggnum mínum.  En ég er eins og þjóðin sennilega öll að horfa á Rock Star Supernova og það er ný komið í ljós að ,,strákurinn okkar” er öruggur þessa vikuna. Svakalega gaman að því hvað honum gengur vel. Ég fékk nú alveg gæsahúð þegar hann fékk ,,the ancore” í síðustu viku. Verð að viðurkenna það. Fann fyrir þjóðarstoltinu. Það kom reyndar alveg tvöfaldur skammtur þar sem að ekkert af því var notað á Eurovision þetta árið. Silvía kallaði það ekki alveg fram...það skríkti því alveg í mér og ég gat ekki setið kyrr í stólnum þegar drengurinn stökk á svið og heillaði liðið.  En nú fer að koma í ljós hver það er sem kveður í þessari viku. Persónulega vona ég að það verði Zayra. En það kemur í ljós. Ég ætla svo bara að henda mér í háttinn beint eftir þáttinn, á að byrja að vinna alveg ókristilega snemma á morgun, hálf sjö. Hata þessar morgunvaktir. Ég er nátthrafn ekki morgunhani!

Kv. Hreindís