Spurningar!
1.Hvað kallarðu mig?
2.Hefuru heyrt mig syngja? Ef svo er hvernig hljómaði ég?
3.Hvað á ég eftir að vera að gera á tíbísku laugardagskvöldi eftir 2 ár?
4.Þegar þú hugsar um mig, hvaða 2 lög dettur þér fyrst í hug?
5.Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhversstaðar, myndiru halda að ég væri á föstu eða á lausu?
6.Þegar þú hugsar til mín, hvaða 5 hlutir dettur þér fyrst í hug?
7.Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?
8.Hvernig stelpa er ég og hvernig típu flokkarðu mig?
9.Hvað erum við mörg í fjölskyldunni?
10.Hefuru öfundað mig? Hvers vegna?
11.Hver er uppáhalds sönkona/söngvari minn?
12.Hvaða lag minnir þig mikið á mig?
13.Hverjum öðrum er röddin mín líkust?
14.Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig?
15.Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
16.Hvernig stráka fíla ég?
17.Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?
18.Hvað er mest einkennandi við mig?
19.Hvaða búðir elska ég að fara í?
Haflaus helgi framundan! Bara skrítið!
En já núna í vikunni hefur ekkert sérstaklega merkilegt gerst nema að ég fór á tónleika (til styrktar rannsóknum á krabbameini í ungum konum) og ég ákvað að hætta í skúringunum og taka frekar meiri vinnu á besta vinnustað í heiminum - Austurbæ...er núna farin að vinna í sennilega einu deildinni þar sem ég hef ekki unnið í fyrir utan hár- og förðunardeildina...ég er sem sagt í miðasölunni. Búin að vinna við allt annað þarna. Það er svo ótrúlega gaman að vinna þarna, yndislegt fólk og frábær mórall þarna. Líka alltaf svo mikið líf og fjör.
Ég hafði ekkert planað fyrir helgina nema að læra, vinna og fara í leiklist. Engin sýning á Hafinu og helgin þess vegna frekar tómleg. Orðinn svona eini virkilega fasti punkturinn hjá mér að vinna við Hafið á sunnudögum. Þess vegna stefndi allt í frekar skrítna helgi...en svo var mér bara boðið í partý og allt að gerast!
Er að spá í að kíkja í leikhús einhverntíman í vikunni (kemur sennilega engum á óvart) og sjá Amadeus í Borgarleikhúsinu, er einmitt að horfa á bíómyndina núna...svo fer ég á tónleika líka á miðvikudaginn, hef ekki hlakkað jafn mikið til tónleika lengi. Útáfutónleikarnir hennar Regínu. Það verður mega gaman enda platan hennar sem kom út síðasta þriðjudag alveg frábær, ég mæli alveg með henni...
Ji, en hvað vikan mín hefur verið óspennandi, á ekki einu sinni efni í lengra blogg en þetta! Nú getur Bibba allavega hætt að kvarta!
Kv. Hreindís
Nýjar myndir, gullkorn, Hvít kanína og naktir leiklistarnemar..
...GLEÐI GLEÐI GLEÐI!
Já, nú getiði verið ánægð með mig. Það svoleiðis hrannast inn myndirnar. Það sem er nýtt er merkt með *NÝTT*! Ótrúlegt en satt. Þar er að finna myndir frá Hafinu Bláa, Sitji Guðs englar, leiklist og Footloose. Endilega kíkið á það...
En núna undanfarið þá er ég bara búin að vera frekar mikið robot, alltaf að gera það sama. Það er ágætt í skólanum, reyndar svaka vinnutörn í gangi og ég reyni að nýta hverja einustu sekúndu sem ég á aflögu yfir daginn til að læra svo ég þurfi sem minnst að læra þegar ég loksins kem heim á kvöldin...
Það er alltaf jafn yndislega gaman í vinnunni niðri í Austurbæ, ég og Dunda sæta mössuðum það svo geðveikt vel að vera sýningarstjórar í gær...djöfull erum við klárar (afsakið orðbragðið). Reyndar er þetta ekki flókin sýning að stjórna fyrir utan ótrúlega leti að hálfu leikarar að koma sér í sound test...
Það er alltaf eitthvað fyndið að gerast þarna niðurfrá og brilljant setningar á hverju strái. Ótrúlega orðheppin öll...þetta er samt frekar mikið af svona ,,had to be there". En svona til að koma með dæmi:
Nr. 1 - Þú veist að þú ert statisti ef þú ert með fleiri búninga en setningar. (Svo innilega satt!)
Nr. 2 - Ohh, ég er svo stressuð, segðu mér að ég sé æðisleg (samt sagt í gríni með tilheyrandi handapati og krókódílatárum).
Nr. 3 - Þá varstu að ljúga að mér að þú þekktir ekki XXX - ég líð ekki svoleiðis...okkar samband verður að byggjast upp á hreinskilni! (líka sagt í djóki með yndislegri uppgerðarásökun þegar ég kannaðist ekki strax við manneskjuna sem viðkomandi var að tala um, sú manneskja nafngreind með XXX)
Svo var svo fyndið að tveir leikarar í sýningunni (engin nöfn nefnd, Agnes veit sennilega hver og ef ekki þá spurðu mig Agnes, þetta er bara fyndið!) voru búin að vera að djóka með að fara í X-factor prufurnar sem dúett og syngja Er ég kem heim í Búðardal í kántríútsetningu með svaka Texas-hreim og slide-i og öllum stælunum. Búin að æfa og allt og svo komu þau ekki og Halla kemur frekar fúl og segir að þau hafi svikið sig (fyrir þá sem ekki vita er Halla kynnir þáttanna) og segir: ,,Hvar var Er ég kem heim í Búðardal...- dúettinn - þið svikuð mig!" þá segir annar meðlimur þessa meinta dúetts: ,,Hann bara komst aldrei heim í Búðardal..." og allir springa út hlátri. Nettur innanhúss húmor samt...ógeðslega fyndið...
En nóg af því...
Ég fór að sjá Hvít kanína á laugardaginn en það var lokasýning á þessu fyrsta verki nemendaleikhúss LHÍ núna þetta árið. Þetta var gjörningur má eiginlega segja og ég skemmti mér bara ágætlega, þetta var nú alveg fyndið á köflum þó svo að það sé kannski ekki hægt að kalla þetta leikrit þar sem það er enginn söguþráður, eins og einhver sagði: ,,Leiklistarskólinn er bara að búa til gjörningalistamenn." Nokkuð til í því ef marka má þessa sýningu. En það sem var BEST var að eftir sýningunna voru busarnir í leiklistinni með paradíu, þar sem þau gerðu grín að sýningunni, vá hvað ég hló mikið...Þekkti tvær þar og guð minn góður, á hvaða sýru eru leiklistarnemar þessa dagana? Þau hafa greinilega verið að stúdera þau lengi vegna þess að þau náðu þeim alveg ótrúlega vel. Lögðu allt í þetta, sumir ansi mikið raddlausir daginn eftir (*hóst* Dunda *hóst*). En þau vori ógeðslega fyndin og skemmtileg og enduðu svo bara nakin á neti...
En þetta er orðið alveg nóg í bili, endilega kíkið á myndirnar allar sem ég var að setja inn núna síðustu daga...
Hreindís leikhúsrotta
Halla og ég...
Tekin...
Hvað fannst ykkur um þáttinn?
En í dag var ég bara heima í vetrarfríi að lesa Njálu og fór svo að skúra og á lúðrasveitaræfingu. Það var fínt.
Þegar ég kom heim horfði ég á fyrri hluta So you think you can dance, elska þessa þætti. Svo horfði ég á upptöku af Tekin og er núna að horfa á seinni hlua So you think you can dance. Ætla svo bara að henda mér í háttinn eftir smá, stefni að að setja myndir inn á síðuna og fara svo að sofa...
Hreindís sem vorkennir Höllu sinni ennþá...
Leikhús...
Ég er búin að vera MEGA dugleg að leikhúsast núna um helgina. Fór á Afganga á fimmtudaginn með mams, Þórunni Örnu, Agnesi, Ágústu, Sigrúnu og Evu Björg en svo var líka Dunda vinkona Þórunnar úr leiklistarskólanum sem ég fékk svo að vita að er að fara að vinna með mér í Hafinu Bláa um næstu helgi...fín stelpa.
Svo sá ég Sitji Guðs englar á föstudaginn. Það var líka æðislegt. Árni Beinteinn að leika. Flottur strákurinn. Mjög falleg leikgerð á þessari yndislegu sögu. Ég var allavega mjög ánægð.
Svo sá ég Footloose í þriðja sinn í gær...gott að hafa góð sambönd. Það var betra núna heldur en síðast þegar ég sá það. Halla sætust alveg mega góð í gær, fékk mann til að hlæja og gráta. Var ekkert smá fúl áðan þegar ég kom heim og sá að upptakan af Hemma þættinum þar sem hún var að syngja er ónýt og ég sá það aldrei. Verð að reyna að redda því einhvernveginn.
Svo var náttúrulega æfing líka í gær í Barna og Unglingaleikhúsinu.
Í dag var svo sýning á Hafinu Bláa þar sem ég er að vinna. Frekar slöpp sýning, það verður að bæta úr því næstu helgi. Samt alltaf gaman að vera þarna niður frá í góðum félagsskap.
En annars er voða fátt að frétta. Er í vetrarfríi í skólanum fram á miðvikudag og er bara að læra og í FÍH og SkóMos og dansinum og eitthvað...
Myndir væntanlegar í kvöld frá Hafinu Bláa, Drekaskógi, Sitji Guðs englar, Footloose og eitthvað...svo endilega kíkið aftur á morgun...
Hreindís
Helv... rollukvikindi!
En það merkilegasta sem hefur gerst síðan síðast er að ég er komin með bílpróf...fékk það 14. sept! Það er æðislegt, þarf ekki lengur að gefa mér 40 mín í að komast á milli staða með strætó!
Mams&pabbi eru farin og komin aftur til og frá Ameríkunni, þau ferðuðust í 5 fylki og keyrðu allt í allt vegalengd sem er rúmlega fjórir hringir í kringum Ísland...
En í dag vorum ég og pabbi uppi í Helgadal hjá ömmu og afa að hjálpa þeim að smala túnin og svo flokka rollurnar. Einhver Baldi og einhver Solla sem eiga líka rollur þarna voru líka. Við vorum fjögur að smala og svo komu amma og afi til að aðstoða við að flokka. Ég held í alvörunni að við höfum sett heimsmet, smöluðum öll túnin og flokkuðum allar helv...rollurnar á sléttum klukkutíma...sem er ekki neitt! Vá hvað við vorum snögg.
En það eru gallar sem fylgja þessari annars ágætis skemmtun, mega marblettir og sár á lærunum daginn eftir. Fyrir þá sem ekki vita hvað fer fram þarna (*Svala borgarbarn*) þá sem sagt rekum við rollurnar inn í litla rétt, flokkum svo úr lömbin og setjum inn í hús en rollurnar annað. Við erum sem sagt að taka lömbin af mömmum sínum. En til þess að fá þau inn (og þau eru ekkert sérstaklega lítil og krúttleg lengur og langar ekkert að fara frá mömmu sinni) þá þarf að grípa í hornin á þeim, standa svo klofvega yfir þeim og draga þær inn í hús. Af því leiðir að hornin stingast inn í lærin á manni. Og gimbrarnar (kvenkyns lömb) eru verri af því að þær eru með horn sem að sveigjast ekki eins og á hrútunum heldur eru bara oddhvassari og leiðilegri! Fékk einmitt eitt á bólakaf í lærið og er með svaka skuð og bólgu og allt svo ekki sé minnst á marblettina, en þetta er alltaf svona! Lærin á mér eru ekkert sérstaklega geðsleg akkúrat núna...Það var samt voða gaman í dag...æðislegt veður til að vera úti að vinna.
Er núna hjá Regínu að passa Anítu krútt! Hún bara að verða 4. ára eftir fimm daga...!
En ég nenni ekki að segja frá öllu sem ég er búin að vera að gera síðan síðast, það er eitthvað rúmlega hálfur mánuður frá því að það var svo það er alveg góður slatti...en Drekaskógs sýningar eru hættar, við í Barna- og Unglinaleikhúsinu að fara að byrja að æfa nýtt leikrit, Hafið Bláa byrjað aftur, ég komin með nýja vinnu þar, sé núna um míkrafónana, sem er skemmtilegra af því að ég er baksviðs allan tímann í mega fínum félagsskap. Tek myndavél næst og set inn myndir! Ég fór á Pétur Gaut (= æðislegt), Footloose (fínt en frumsýningin var betri), Bjögga (= geðveikislega gaman) og Lion King í þriðja sinn (María ennþá ,,blowing me away"). Annars er allt bara þetta venjulega, skólinn, flauta, dans og FÍH sem er geðveikt skemmtilegur skóli!
Kv. Hreindís Ylva