Gleði, gleði, gleði...
29. mars 2007 klukkan 21:27

Það eina sem mér kom í hug sem titill á þessa litlu bloggfærslu er nafnið á skólasöng MH því að ég hef sko margt að vera glöð yfir núna...
*Ég fékk 8,9 í 2. stigs prófinu mínu
*Erla frænka er í flugvél akkúrat núna á leiðinni til Íslands
*Restin af familíunni hennar kemur á laugardaginn frá Noregi (nema Jónas reyndar)
*Á morgun er síðasti dagur fyrir páskafrí
*Á morgun er FÍH partý
*Ég er að fara í annan Complete Vocal Technique tíma næsta mánudag
Já stundum er lífið BARA gott og skemmtilegt!
Hreindís
12. MARS 2007
12. mars 2007 klukkan 18:52
Þar sem að meira að segja móðir mín er farin að nefna við mig að ég sé ömurlegur bloggari þá fannst mér eins og tími væri kominn til að skella inn eins og einni ómerkilegri færslu.
Ég hef samt ekki frá neinu að segja. Ég er alltaf að gera það sama. Skóli - FÍH - vinna - læra - æfa mig fyrir stigspróf (2. stig í jazzsöng). Það er reyndar hafin hérna á heimilinu ein allsherjar yfirhalning á öllu inanstokks í húsinu. Það er verið að mála og breyta og bæta svo að húsið lítur meira og minna út eins og eftir hvifilbyl! Þetta verður samt allt rosalega fínt þegar allt er búið. Herbergið mitt er númer þrjú á planinu held ég. Það er verið að klára herbergið hans Yngva, svo baðherbergið upp og svo mitt herbergi. Ég hlakka mikið til, hef reyndar engar litahugmyndir...
Svo er meira skemmtilegt framundan. Dísa, systir mömmu sem býr í Noregi og maðurinn hennar og yngri strákurinn þeirra (Harry - 15 ára) koma núna 31. mars en tveimur dögum fyrr kemur dóttir Dísu, hún Erla Huld til Íslands með danska kærastann sinn. Ég hlakka ekkert smá mikið til því Erla er besta frænka í geimi (ásamt þér Bryndís mín, áður en þú ferð að kvarta) og ég hef ekki hitt hana ótrúlega lengi. Eldri sonurinn (Jónas - 17 ára) kemur ekki með því hann er að fara i eitthvað skíðaferðalag...vaá þetta verður bara gaman. Þau hafa ekki verið svona mörg á landinu í einu síðan þau fluttu út held ég bara...og við höfum heldur aldrei hitt kærastann hennar Erlu.
Og ég sem hélt að þetta yrði stutt blogg...
Kv. Hreindís

Afmæli...
01. mars 2007 klukkan 13:10
Aaaááátján ára!
Sjálfræði
Fjárræði
Lögræði
Kosningarréttur
Jebb, það er í dag!