Aðalvalmynd

Guildford...London...

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Egilsstaðir/London/Kulusuk?

17. nóvember 2007 klukkan 16:38

Ég veit hvað þið eruð að hugsa...Hreindís að blogga tvisvar í sömu viku?

En...

Ég fann bara svo OF góða ástæðu til að blogga. Ég var nefnilega að skoða flugfargjöld vegna þess að ég er vonandi að fara í sumarskóla í London næsta sumar (leiklist, söngur og dans!) og var að reyna að fá einhverja heildarupphæð. Var að reikna út verðið á fluginu þegar mér datt í hug að gera smá samanburð á verði á innanlands- og utanlandsflugi. Ég bjóst ekki við niðurstöðunum sem ég fékk, ég vissi nú að það væri dýrt að fljúga innanlands en ekki svona dýrt. Hér eru dæmi (og ég valdi í öllum tilvikum ódýrasta flugið sem var í boði og alltaf sömu brottfarar og komudagssetningu):

Áfangastaðir Iceland Express
Reykjavík - London og til baka:      17,190
Reykjavík - Köben og til baka:        19,740

Áfangastaðir Flugfélags Íslands - án allra aukaafslátta eins og t.d. netkaupaafsláttar o.s.fr.v.
Reykjavík - Akureyri og til baka:     25,260

Reykjavík - Egilsstaðir og til baka:  28,240
Reykjavík - Ísafjörður og til baka:  25,260

Einnig má til gamans geta að það kostar 72,446 að fljúga með Flugfélagi Íslands fram og til baka Reykjavík - Grænland og 57,770 til og frá Færeyjum.

Af hverju að fara til Egilsstaða þegar það er rúmum 10,000 kr ódýrara að skella sér til London?

SPES

Kv. Hreindís

Same old, same old!

15. nóvember 2007 klukkan 17:32
Já, maður er svona líka rooosalega öflugur bloggari að vanda! Ákvað að skella inn einni stuttri færslu. Mér finnst reyndar allar færslur hjá mér vera eins þessa dagana, vegna þess að ég er alltaf að gera það sama.
Mikið er ég fegin að þessi vika er að klárast, geðveiki í skólanum, 3 fyrirlestrar, 2 próf og ein ritgerð bara í þessari viku. It's that time of the year...

Það gengur allt rosalega vel í Borgarleikhúsinu, æfingar ganga vel og hópurinn er alveg frábær, flinkir listamenn í öllum störfum og í hverju horni. Við erum víst einmitt að fara í einhverja svona ,,hópeflingarferð" á morgun. Förum með rútu í fyrramálið og komum aftur einhverntíman um fjögur leytið á morgun. Erum að fara á Sólheima og í sund og bara svona rölta um og vera úti og hrista saman hópinn. Það verður indælt.

Annars gengur skólinn bara vel, alveg merkilega vel miðað við að ég mæti illa vegna æfinga í leikhúsinu. FÍH gengur líka vel. Alltaf jafn gaman þar. Við stelpurnar þaðan hittumst einmitt um daginn í innflutnings-söngdívu-boði í nýju íbúðinni hjá Maríu og Viggu. Virkilega hugguleg kvöldstund það! Eins og ég sagði í síðasta bloggi þá fórum við líka nokkrar út að borða fyrir löngu, það var líka voða kósí. Ég og Erlurnar kíktum svo á Kaffibrennsluna eftir það...gott að sitja svona og spjalla.

Ég fór að sjá Skilaboðaskjóðuna í Þjóðleikhúsinu um síðustu helgi. YNDISLEG sýning. María mín sætasta var að leika og dansa þar. Hún er svo mikið TALENT og ég var svooo stolt af henni. Annars afrekaði ég það um daginn að núna get ég sagst vera búin að sjá allar sýningar sem eru til sýninga í augnablikinu í Borgarleikhúsinu. Geri aðrir betur...er svo að fara að sjá jólasýninguna hjá Borgarbörnum sem er Barna- og unglingaleikhús Borgarleikhússins. Svanhildur, Snæja, Auður, Yuri og Árni Beinteinn eru í þeirri sýningu. Stelpurnar fjórar eru líka í leiklist hjá okkur í Barna- og Unglingaleikhúsinu í Austurbæ. Duglegar stelpur, ég er rosa stolt af því að eiga smá í þeim...vona það allavega að ég megi eiga soldið í þeim...en Svanhildur sæta mús hringdi í gær og bauð mér á general-prufu hjá þeim á mánudaginn. Voða spennó...

En jæja, ætli þetta sé ekki að vera gott. Ætla að fara að horfa á endursýningu á America's Next Top Model þar sem ég missti af því í gær vegna prófalesturs. Svo bara fara að sofa, er soldið spennt fyrir morgundeginum! Verður pottþétt stuð hjá okkur í ,,ferðinni".

Knús,
Hreindís

P.S. Styttist í að elsku Erla frænka komi til Íslands aftur... :D Jeijj, sakna hennar ALLTAF!