Aðalvalmynd

Guildford...London...

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Til hamingju elskurnar!

22. maí 2008 klukkan 21:31
Kæru Íslendingar! 

Það er bara Yatzi á Balkanskaga sagði snillingurinn Gísli Marteinn einhverntíman þegar allar Balkanþjóðirnar komust áfram úr undakeppni Eurovision - nú sendum við þeim langt nef og segjum: Það er bara yatzi á Norðurlöndunum! Haha!

Kraftaverkin gerast víst enn. ALLAR Norðurlandaþjóðirnar eru komnar í úrslit Eurovision. Þetta er náttúrulega bara gott fyrir okkur að hafa vini okkar og frændur þarna með okkur. Þetta er ótrúlegt, líka það að m.a. Makedónía komst ekki áfram! ÞAÐ er kraftaverk. Það skilja þeir sem hafa rýnt í Eurovision eins og ég, Makedónía hefur getað gert hvaða drasl sem er að lagi og hvaða meðaljón sem er að söngvara og hafa alltaf komist áfram! Ég er svo hamingjusöm með þetta. Það er greinilegt að nýja fyrirkomulagið á keppninni réttlætir kosninguna. Það voru flott lög sem komust áfram! Eða svona velflest allavega J Ég hefði reyndar viljað sjá Kýpur áfram en það er ekki á allt kosið...Ég hef sjaldan verið ánægðari en einmitt þegar Ísland var lesið upp fjórða af þeim sem komust áfram, svo Danmörk beint á eftir og svo Svíþjóð. Þetta gæti ekki hafa farið betur! Nú er bara að krossa fingur og senda hlýja strauma til Serbíu fram á laugardag.  

Ég var svo stolt að sjá hana Regínu þarna, syngjandi og dansandi eins og drottningu – stórkostlega vel eins og alltaf - með litla stafi sem skrifa 01 Iceland neðst á skjánum, Eurovision kynninguna og póstkortið á undan laginu. Sjaldan eða aldrei verið stoltari af henni og yndislegt að sjá hana með rauða hjartað sem Aníta gerði handa henni standandi fremsta á sviðinu í lokin veifandi fallegu gjöfinni. Yndislegt! 

Já, þetta er frábært kvöld. Við getum verið stolt af þeim! Til hamingju krakkar mínir! 

Regína, Friðrik, Hera, Guðrún, Pétur og Grétar – þið voruð æðisleg! 

Þetta var nú svo sem allt sem ég vildi sagt hafa, það er hvort sem er ekkert að frétta nema að ég fékk einkunnirnar í dag og það gekk allt bara svakalega vel, fjórar 8, tvær 9 og ein 10. Ég er bara ofsalega sátt við það. Frekar svekkjandi samt að vera svona fáránlega stutt (örfáar kommur) frá því að fá níu í sálfræði...hefði alveg átt það skilið - en svona er þetta bara! Ég var með 8.6 í meðaleinkunn svo ég held þetta sé bara ljómandi gott.
 

Jæja ég kveð á þessu yndislega Eurovision-sigurkvöldi! 

Hreindís stolta!

Fallegu fulltrúar Íslands!

Hérna er svo mynd af þessum elskum!

Navia trailer og fleira...

06. maí 2008 klukkan 15:02
Jæja

Þá eru prófin byrjuð og ég ætti allra síst að vera að blogga. En ég ákvað að taka mér örlitla hvíld frá rokksögulestri og skrifa smá...

Nú það hefur ýmislegt á daga mína drifið síðan síðast...Súperstar ævintýrið er á enda :( Lokasýningin var 26. apríl. Það var ekki gaman að klára þetta en þetta er búið að vera hrikalega gaman - Don't cry because it's over, smile because it happened - sagði einhver sniðugur og á það mjög vel við á svona tímamótum. Það kemur bara eitthvað annað spennandi og skemmtilegt í staðinn. Ég hef furðu lítinn aftershow-blues fengið. Sennilega vegna þess að prófin byrjuðu fljótlega eftir lokasýningu og enginn tími til að vera blúsaður... :P

Ég fór til Köben og Gautaborgar með mömmu frá 21. apríl til 25. apríl. Við skelltum okkur með sama og engum fyrirvara. Planið var upphaflega að fara bara til Gautaborgar en þar sem það er svo fáránlega dýrt að fljúga þangað fórum við í gegnum Köben. Flugum þangað á mánudegi, svo til Gautaborgar ELDSNEMMA á þriðjudegi þar sem ég skoðaði leiklistardeildina í Háskólanum í Gautaborg. Leist mjög vel á. Stór og flottur skóli. Ég fékk svo að sitja inni á æfingu á verki sem var svo frumsýnt núna fyrir þremur dögum. Svaka flott. Við vorum svo í Gautaborg á miðvikudeginum líka en flugum til Köben á fimmtudagsmorgni og sáum Bjöggatónleikana um kvöldið. Mikið gaman það. Eurobandið var svo að spila á balli eftir tónleikana og þetta var annað ballið sem ég sé og heyri með þeim. Ég fór líka á Broadway þarna laugardaginn á undan (19. apríl). Hrikalega skemmtileg á balli krakkarnir. Nú eru þau bara að fara út eftir 6 daga. Get ímyndað mér að þau séu orðin spennt...vonandi gengur allt vel! (krossum puttana)

Ég er búin með tvö próf (landafræði og bóklega hljómfræði) og á sjö eftir (söng, verklega hljómfræði, frönsku, rokksögu, ensku, sálfræði og náttúrufræði). Svo það er bara læra, læra hjá mér næstu vikuna, en eftir 8 daga verður þetta allt búið - sem betur fer. Þá mun ég byrja að vinna. Ég verð í krúttlegustu búð í heimi í sumar. Stubbasmiðjan heitir hún. Það eru allavega allar líkur sem benda til þess núna, þ.e.a.s. að ég verði þar. Ég var líka komin innundir í Sönglist í Borgarleikhúsinu en þar var minni vinna og ég þarf alveg að safna smá pening vegna þess að sumarskólinn í sumar er alveg að taka smá pening úr sjóðnum mínum :P

Fyrir þá sem hafa áhuga þá er tilbúinn trailer frá Navia verkefninu sem ég var að vinna í í mars. Þetta eru s.s. fimm söngkonur að sameina krafta sína til að hjálpa fyrirtæki sem rekur starfsemi í Afríku sem hjálpar fólki að hjálpa sér sjálft. Mjög kröftugt og gott starf og heiður að fá að taka þátt í þessu. Ég var s.s. titluð sem production assistant og í því felst að gera - já svona beisikklí allt sem þarf að gera, aðstoða með allt og vera allsherjar reddari. Ég fékk töluvert að halda á kameru og taka svona behind the scenes efni :P Mjög gaman og margt af því notað í þessum trailer. Endilega kíkið...

Ég er svo vonandi líka að fara að vinna eitthvað hjá þeim í byrjun sumars. Það mun allt skýrast núna fljótlega. Það væri allavega geðveikt gaman að vera með þeim aftur. Það var allavega talað um halda sem mest sama crewi allan tímann...oh, það var svo gaman síðast!


Jæja, ég er farin að lesa meiri rokksögu!

Adios

Hreindís

Ég mæli með...ÞESSU!

03. maí 2008 klukkan 19:01
LESIÐ ÞETTA OG MÆTIÐ PEOPLE!

Kv. Hreindís



Sunnudaginn 4. maí verða jazztónleikar á Múlanum með lögum The Beatles í jazz útsetningum.

Það eru þau feðgin, Erla Stefánsdóttir söngkona og Stefán S. Stefánsson saxófónleikari og útsetjari sem fara fyrir þessum tónleikum. Þeim til fulltingis verða þeir:
Kjartan Valdemarsson píanó, Róbert Þórhallsson bassaleikari og Erik Qvick trommuleikari sem ásamt Stefáni mynda Kvass kvartettinn.

Sérstakur gestur er Snorri Sigurðarson trompetleikari.

Efnisskrá samanstendur af mörgum þekktari sem og óþekktari lögum bítlanna t.d.

I will, Fixing A Hole, Got To Get You Into My Life og Things We did Today.

,,Það var alltaf hugmynd hjá okkur að gera eitthvað skemmtilegt saman í tónlistinni og þegar þessi hugmynd kom upp um bítlana þá fannst mér eins og það gæti ekki farið úrskeiðis.” segir Stefán S. Stefánsson um samstarf þeirra feðgna. ,,Erla hefur alltaf verið alæta á tónlist og í efnivið bítlanna mætist allt það besta i popptónlist sem svo auðvelt er að færa í jazz búning af þeirri einföldu ástæðu að þar rekur hvert snilldartónverkið annað!”

Umsjón útsetninga hefur Stefán S. Stefánsson

Tónleikarnir hefjast kl. 21.00 og er miðaverð 1000 kr. og 500 kr. fyrir nemendur.

Múlinn - Domo - restaurant Þingholtsstræti 5